Author: lensherra

Kristín Eysteinsdóttir ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins

Stjórn Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsinu, hefur ákveðið að ráða Kristínu Eysteinsdóttur leikstjóra sem næsta leikhússtjóra Borgarleikhússins. Umsóknir um starfið voru á annan tug og eftir vandað ráðningarferli ákvað stjórn LR einróma að ráða Kristínu Eysteinsdóttur sem næsta leikhússtjóra. Kristín Eysteinsdóttir lauk meistaragráðu í leikstjórn frá Goldsmiths University of London árið 2007, en hafði áður lokið BA námi í dramatúrgíu frá Árósarháskóla árið 2002. Kristín hefur verið fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið frá árinu 2008 og í stjórnendateymi leikhússins á síðustu misserum.  Hún á að baki margar rómaðar sýningar, þ.á.m. Svar við bréfi Helgu, Fólkið í kjallaranum, Núna!, Dúfurnar, Rústað, Penetreitor og...

Sjá meira

Furðulegt háttalag hunds um nótt

Laugardaginn 8. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Furðulegt háttalag hunds um nótt á Stóra sviðinu. Verkið hefur slegið rækilega í gegn á West End, var ótvíræður sigurvegari sviðslistaverðlauna Breta, Olivier Awards, á síðasta ári hlaut sýningin alls sjö verðlaun, m.a. sem besta sýningin og besta leikritið. Engin sýning hefur áður hlotið fleiri verðlaun á hátíðinni. Hilmar Jónsson leikstýrir sterkum hópi leikara með Þorvald Davíð Kristjánsson í aðalhlutverki. Finnur Arnar Arnarsson hannar leikmynd, Þórunn María Jónsdóttir búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsingu. Danshöfundur sýningarinnar er Lee Proud og myndband hannar Petr Hloušek en báðir ljáðu Mary Poppins listræna krafta sína á síðasta...

Sjá meira

Strákapör sambýlinganna hjá Halaleikhópnum

Síðasta sunnudag skellti ég mér á sýninguna Sambýlingar eftir Tom Griffin, sem Halaleikhópurinn er að setja upp um þessar mundir. Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir sáu um leikstjórn að þessu sinni, en þau hafa tvisvar sinnum áður unnið með þessum leikhóp. Verkið fjallar um fimm einstaklinga, fjórir af þeim búa undir sama þaki. Þrír af þeim eru þroskaheftir og sá fjórði er með geðklofa á háu stigi. Sá fimmti er umsjónarmaður þeirra. Fáum við að fylgjast með samantekt af tveggja mánaða tímabili í lífi þeirra, eða þangað til umsjónarmaðurinn yfirgefur þá fyrir annað starf. Sviðið var langt og...

Sjá meira

Lína Langsokkur á Þingeyri

Það er mikið líf og fjör í Dýrafirði þessa dagana. Þar hafa staðið yfir æfingar á einu vinsælasta barnaleikriti allra tíma Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren. Lokaspretturinn stendur nú yfir og allt að verða tilbúið á Sjónarhóli. Lína Langsokkur verður frumsýnd laugardaginn 8. mars kl. 14 í félagsheimilinu á Þingeyri. Næsta sýning verður strax daginn eftir sunnudaginn 9. mars. Síðan verður haldið áfram næstu helgar. Einnig verða sýningar á Línu Langsokk um páskana. Miðasala á allar sýningar hefst núna á föstudag 28. febrúar í síma 867 9438. Það er leikdeild Höfrungs á Þingeyri sem setur leikritið um Línu Langsokk...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Þremur systrum

Síðustu sýningar á Þremur systrum eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar hjá Leikfélagi Kópavogs verða nú um helgina. Sýningin sem var frumsýnd 31. janúar síðastliðinn hefur fengið mikið lof enda afar metnaðarfull uppsetning á þessu klassíska verki. Lárus Vilhjálmsson sagði m.a. í gagnrýni sinni: „… frábært afrek og gott dæmi um vel heppnað samstarf atvinnufólks og áhugafólks í sviðslistum. Þrjár Systur er sko ekki leiðinlegt. Það er fyndið, skemmtilegt og betra drama en þú sérð nokkurn tíma í sjónvarpinu og ég hvet alla til að fara á þessa æðislegu sýningu sem ég gef hiklaust fjórar stjörnur.“  Miðasala er...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert