Author: lensherra

Ferjan í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 21. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Ferjuna á Litla sviðinu, glænýtt íslenskt verk eftir einn ástsælasta höfund þjóðarinnar Kristínu Marju Baldursdóttur. Verkið fjallar um fimm íslenskar konur og þrjá karla sem stödd eru erlendis og neyðast til að sigla saman heim til Íslands í ryðguðum dalli. Þá hefst baráttan fyrir því að finna leiðina heim, hið ytra sem innra – að finna sjálf sig og komast á leiðarenda. Leikstjóri verksins er Kristín Eysteinsdóttir, nýskipaður leikhússtjóri Borgarleikhússins. Vytautas Narbutas hannar leikmynd, Stefanía Adolfsdóttir búninga, Þórður Orri Pétursson lýsingu. Hallur Ingólfsson semur tónlist fyrir verkið. Leikarar eru þau Anna Kristín Arngrímsdóttir, Birgitta...

Sjá meira

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Brúðkaup

Leikfélag Fjallabyggðar, sem til varð við sameiningu leikfélaganna á Siglufirði og Ólafsfirði, æfir nú nýtt leikrit, Brúðkaup, eftir Guðmund Ólafsson, sem jafnframt er leikstjóri. Verkið fjallar, eins og titillinn bendir til, um brúðkaup. Herdís Eva er loksins gengin út og ætlar að ganga að eiga hann Bjarna Þór, sem er traustur starfsmaður Heimilistækja. En séra Guðrún leggst í lungnabólgu og verður þá að kalla til fyrrverandi sóknarprest, en hann er því miður, sjaldnast með allt á hreinu. En veislan ætti að ganga vel því veislustjórinn vinnur hjá Aríonbanka í Reykjavík og það er sko ekkert víst að tæknin klikki...

Sjá meira

Harmsaga á svið í Kennedy Center

Sýning Þjóðleikhússins á Harmsögu eftir Mikael Torfason verður sýnd í Kennedy Center helgina 15. og 16. mars. Sýningin var valin til að taka þátt í stórri alþjóðlegri leiklistarhátíð, World Stages. Viðburðir á hátíðinni koma frá 20 löndum, en meðal þeirra sem taka þátt eru ýmsir af fremstu leikhúslistamönnum heims. Má þar nefna leikstjórann Peter Brook, leikskáldin Ariel Dorfman og David Williamson, og the Handspring Puppet Company. Sýningarnar á hátíðinni koma víða að, meðal annars frá Frakklandi, Ástralíu, Mexíkó, Chile, Bretlandi, Suður-Afríku, Kanada, Ísrael, Kína og Japan. Harmsaga var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í september s.l. í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur en...

Sjá meira

Mjallhvít og dvergarnir 7 í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir  gamla góða ævintýrið um Mjallhvíti og dvergana sjö í nýrri leikgerð Hafsteins Þórs Auðunssonar  föstudaginn 14. mars nk. í Leikhúsinu, Austurmörk 23. Hafsteinn er einnig leikstjóri og höfundur tónlistar sem útsett er af  Guðmundi Eiríkssyni, píanóleikara sýningarinnar. Í byrjun janúar hélt Leikfélagið leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára. Leiðbeinandi var Hafsteinn Þór Auðunsson. 25 krakkar tóku þátt í námskeiðinu og meira en helmingur þeirra taka þátt í þessari sýningu. Leikarar eru alls 32 á aldrinum 8-55 ára. Leikfélag Hveragerðis var stofnað 1947 og hefur sett upp á hverju ári sýningar sem sumar hverjar hafa...

Sjá meira

Leiklistarskóli Bandalagsins 2014

Starfstími skólans á þessu ári er frá 14. til 22. júní að Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu. Skráning í skólann hefst 15. mars og stendur til til 15. apríl. Í ár er það markmið okkar að bjóða upp á fjölbreytt námskeið fyrir byrjendur jafnt sem og þá sem vilja treysta enn frekar þekkingu sína og reynslu. Til okkar koma þrautreyndir og þekktir kennarar sem hafa allir kennt hjá okkur áður við góðan orðstír. Ágústa Skúladóttir mun fara með byrjendum í öll grunnatriði í list leikarans á námskeiðinu Leiklist I. Rúnar Guðbrandsson verður með sérnámskeið fyrir lengra komna leikara með svipuðu sniði...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert