Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir Hið vikulega
Næstkomandi laugardag, þann 15. mars, mun Leikfélag Hafnarfjarðar hrinda af stað vorverkefni sínu. Það ber hið virðulega heiti Hið Vikulega, þar sem æfð verða upp og sýnd nokkur stuttverk í hverri viku í fjórar vikur alls, sjö til tíu verk í hvert sinn. Félagar í Höfundasmiðju leikfélagsins situr sveitt þessa dagana við að skrifa verkin sem sett verða upp. Þeir sem áhuga hafa á að vera með í þessu verkefni, leikarar, leikstjórar eða annað, endilega hafið samband á leikfelag@gmail.com eða einfaldlega mætið í Gaflaraleikhúsið á laugardaginn næstkomandi kl. 10.00. Hægt er að taka þátt allar fjórar vikurnar, eða einhverja...
Sjá meira


