Frábær kvöldskemmtun í Lyngbrekku
Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi söng- og gamanleikinn Stöngin inn í Lyngbrekku föstudaginn 14. mars sl. við gríðargóðar undirtektir áhorfenda sem fylltu salinn og skemmtu sér konunglega.Stöngin inn er bráðskemmtilegt nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson leikara. Stöngin inn var frumsýnd í fyrsta sinn fyrir ári hjá sameiginlegu leikfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og hlaut á síðasta ári verðlaun sem athyglisverðasta leiksýning áhugaleikfélaganna og var í kjölfarið sýnt i Þjóðleikhúsinu. „Leikritið vísar í forngríska gamanleikinn Lýsiströtu þar sem konurnar reyna að fá karlana til að láta af stríðsrekstri með því að setja þá í kynlífsbann, en hér eru það konurnar í litlu...
Sjá meira


