Föstudaginn 14. mars mun Leikfélag Mosfellssveitar frumsýna nýtt gamanleikrit sem nefnist Líf mitt í kassanum. Leikstjóri verksins er Jóel Sæmundsson og höfundur er Hrafnkell Stefánsson, sem  meðal annars er handritshöfundur bíómyndanna Kurteist fólk og Borgríki 1 og 2.

Alls eru leikarar 7 talsins. Aðalpersóna leikritsins er Nonni sem býr með fyrrverandi kærustu sinni og vini sínum. Verkið fjallar um samlíf og samskipti þeirra vina. Þegar fer að halla undan hjá Nonna veit hann ekki alveg hvað er í gangi eða hvernig hann eigi að bregðast við því, en hinir virðast ekki vera alveg á sömu nótum.

Miðapantanir eru í síma 566 7788. Sýnt verður á föstudögum og sunnudögum til og með 6. apríl n.k.