Author: lensherra

Vorverkin hjá Leikfélagi Kópavogs

Vorverkin, þriggja þátta leikdagskrá Leikfélags Kópavogs verður frumsýnd í Leikhúsinu Funalind 2, þriðjudaginn 27. maí kl. 19.30. Þættirnir eru Úlfur í ömmugæru eftir og í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar, Strikið eftir Pál J. Árdal í leikstjórn Arnar Alexanderssonar og Bóleró eftir David Ives í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Alls taka 12 leikarar þátt í leikdagskránni. Dagskráin er einnig sýnd mið. 28. maí kl. 19.30. Miðaverð er 1.000 kr. og hægt er að panta miða á midakaup.is/kopleik eða með því að senda tölvupóst á...

Sjá meira

Wide Slumber í Tjarnarbíói á Listahátíð

Wide Slumber er nýtt tónleikhúsverk úr smiðju VaVaVoom og Bedroom Community sem fléttar saman lifandi tónlist eftir Valgeir Sigurðsson við leikhúsgaldur VaVaVoom (S. Sunna Reynisdóttir og Sara Martí). Verkið er innblásið af ljóðabókinni Wide Slumber For Lepidopterists eftir a. rawlings, þar sem mismunandi stigum svefns er líkt saman við lífshring fiðrilda og prósi hins vakandi manns umbreytist í ljóð þess sem sefur. Frumflutt á Listahátíð í Tjarnarbíói | 24. – 26. maí Dragðu andann í takt við vængjaslátt mölflugu sem berst fyrir lífinu við logann frá ljósaperunni, á meðan þú glímir við flækta sængina í óravíðum andvökudraumi. Furðuheimur sífelldra...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Extra sterkt hárgel frá Kryolan. Kemur í 500 ml. dósum og kostar 4.500 kr. Gelið festir mjög vel og endist lengi. Næst úr hárí með vatni og sápu. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Viltu greiða þér í kamb? Þá er þetta varan sem þú þarft. Upplýsingar um vöruna frá framleiðanda, athugið að við seljum gelið bara í 500 ml. dósum, ekki túbum:...

Sjá meira

Rommí á Bíldudal

Það má með sanni segja að  leiklistarlífið hafi verið í góðum gangi á Vestfjörðum síðustu ár. Áhugaleikfélögin vestra hafa sett upp hvert stykkið á fætur öðru og það sem enn betra er að mörg félög hafa verið að vakna af sínum Þyrnirósadvala. Nú hefur hið fornfræga Leikfélagið Baldur á Bíldudal vaknað á nýjan leik og er að frumsýna núna á helginni. Um er að ræða hinn vinsæla gamanleik Rommí eftir D. L. Coburn. Það eru þau Hannes Friðriksson og Þuríður Sigurmundsdóttir sem fara með hlutverkin í Rommí. Leikurinn gerist á dvalarheimili eldri borgara og má segja að fast sé...

Sjá meira

Fantastar – leiksýning við höfnina

Hvalur hefur tekið sér bólfestu í húsi við höfnina. Hann tælir til sín gesti og gangandi með seiðandi söng sínum. Risakræklingur er bundinn við bryggju – fljótandi hljóðfæri liggur við höfnina.  Þegar komið er inn í gin hvalsins hefst andlegt ferðalag, sem er lyginni líkast.  Þetta ferðalag í gegnum iður hvalsins er þekkt minni í trúarbrögðum, skáldsögum og þjóðsögum þessara landa.  Líkt og Jónas í hvalnum og Gosi forðum daga, mæta áhorfendur aðstæðum og Fantöstum sem hjálpar þeim að sjá lífið og sjálft sig í nýju ljósi. Lygin er ekki andstæða sannleikans heldur hluti af honum. (Gusta Aagren) Fantastar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert