Author: lensherra

Hundur í óskilum sýnir Öldina okkar

Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í Óskilum voru farnir að gæla við þá hugmynd að setja á svið gríðarstórt sjóv með 20 dönsurum og leikurum í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar. Þeir neyddust hins vegar til að sníða sér stakk eftir vexti og nú trana þeir engum öðrum fram en sjálfum sér (enn eina ferðina) í glænýju leik- og tónverki sem kallast  Öldin okkar. Hundur í Óskilum er við sama heygarðshornið og í Sögu þjóðar, en spólar sig að þessu sinni í gegnum 21. öldina – þessi 14 ár sem liðin eru. Hundinum er náttúrlega ekkert íslenskt óviðkomandi; hann...

Sjá meira

Óperan Don Carlo í fyrsta sinn á Íslandi

Óperan Don Carlo verður frumsýnd í Íslensku óperunni í Hörpu næstkomandi laugardag. Í aðalhlutverkum í þessu mikilfenglega stórvirki Giuseppe Verdi eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson í titilhlutverkinu, Kristinn Sigmundsson í hlutverki Filippusar konungs, Hanna Dóra Sturludóttir í hlutverki Eboli prinsessu, Helga Rós Indriðadóttir í hlutverki Elisabettu drottningar og Oddur Arnþór Jónsson í hlutverki Rodrigo, en þau tvö síðastnefndu þreyta nú frumraun sína hjá Íslensku óperunni. Þess má ennfremur geta að rúmur áratugur er síðan Kristinn Sigmundsson kom síðast fram í óperuhlutverki hér á landi, en hann er einn þekktasti tónlistarmaður Íslands á erlendum vettvangi og kemur reglulega fram á fjölum...

Sjá meira

Verksmiðjukrónikan frumsýnd á Melum

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir þann 16. október leikritið Verksmiðjukrónikan eftir Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Sögu Jónsdóttur. Leikritið gerist á Akureyri um 1940.   Verkafólk á  verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu, bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum. Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa  t.d. á ungu stúlkurnar og bretaþvottur er ekki öllum að skapi, margar skemmtilegar og sérstakar persónur líta þarna dagsins ljós. Leikritið byggir á ýmsum atburðum sem þær stöllur hafa lesið eða heyrt um en margt er fært í stílinn. Leikritið er ekki sagnfræðileg heimild. Frumsýnt verður 16. október að Melum í Hörgársveit, leikstjóri er...

Sjá meira

Syngjandi glaðir rassálfar og ræningjar

Leikfélag MosfellsbæjarRonja ræningjadóttir eftir Astrid LindgrenLeikstjórn: Agnes Wild  Tónlistarstjórn: Sigrún Harðardóttir  Leikmynda-og búningahönnun: Eva Björg Harðardóttir Ronja ræningjadóttir er saga um vináttu, kærleika og hugrekki. Vináttu sem sigrar þrátt fyrir erfiðar hindranir. Hvernig sigrast má á hindrunum og hvernig það er miklu auðveldara að vera ekki hræddur ef maður á einhvern að. Astrid Lindgren hefur alltaf svo fallega og fyndna sýn á lífið án þess að gera lítið úr þeim hættum sem steðjað geta að og alltaf er boðskapurinn sá sami, að öll séum við frábærar manneskjur sama hvaðan við komum eða hvernig við erum.  Ronja er áhugaverð stelpa...

Sjá meira

Lífið, drullumall fyrir alla fjölskylduna

Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Leikhúsið 10 fingur, sem stendur að þessari sýningu, setti upp verðlaunasýninguna Skrímslið litla systir mín og hlaut Grímuverðlaunin sem besta barnasýning ársins 2012. Lífið verður frumsýnt í 18. október í Tjarnarbíó. Leiksýningin Lífið fjallar um sköpunarkraftinn, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið er með mold. Sýningin er unnin á sama hátt og Skrímslið litla systir mín – með óvenjulegri aðferð þar sem sagan í verkinu fær að kvikna út úr efniviðnum sem notaður er í sýningunni.  Leikhópurinn vann spunavinnu í um þrjá mánuði og útkoman er stórskemmtileg,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert