Karitas, frumsýning 17. okt.
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 17. október á Stóra sviðinu nýtt leikrit byggt á skáldsögum Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Skáldsögur Kristínar Marju, Karitas án titils og Óreiða á striga, hafa notið mikilla vinsælda og óhætt er að segja að sýningarinnar hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu og hefur nú þegar þurft að bæta við aukasýningum vegna mikillar eftirspurnar. Í sýningunni kynnumst við listakonunni og móðurinni Karitas sem hefur leitað skjóls í afskekktri sveit eftir að veröld hennar hefur hrunið. Minningabrot og andvökudraumar ásækja hana í hvítum bjarma jökulsins sem gnæfir yfir öllu. Móðurhjarta hennar er...
Sjá meira


