Author: lensherra

Dansverk í Frystiklefanum

Föstudagskvöldið 14. nóvember heldur belgíski dansarinn Mirte Bogaert sýningu á nýju verki í Frystiklefanum á Rifi. Mirte hefur haft aðsetur í klefanum frá því í byrjun október og unnið ötullega að þessu nýja dansverki sem sækir innblástur sinn í náttúruna og veðrið á Snæfellsnesinu. Þetta er í fyrsta skipti sem listamaður hefur aðsetur í klefanum og þótti henni einkar ánægjulegt að dveljast á Rifi. Hún sótti meðal annars prjónanámskeið og gerði sitt besta til að læra íslensku með góðri hjálp Kötu í Rifssaumi. Sýning Mirte hefst klukkan 20:00 og stendur yfir í rúmar þrátíu mínútur.  Eins og fyrri daginn...

Sjá meira

Fullkomið brúðkaup á Hellu

Föstudagskvöldið 7. nóvember kl. 20.30 frumsýnir Leikfélag Rangæinga Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í Hellubíói á Hellu. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og Örn Árnason þýddi verkið. Fullkomið brúðkaup er sprúðlandi farsi þar sem mannlegur breiskleiki og illa ígrundaðar lygar koma af stað atburðarás sem getur ekki endað nema á einn veg. Með ósköpum. Verkið greinir frá Bjarna sem vaknar að morgni brúðkaupsdags síns, eftir svaðalegt steggjapartý, í brúðarsvítu Stracta hótels á Hellu, með ókunnuga og nakta stúlku sér við hlið. Þar sem hann getur ekki fyrir sitt litla líf munað hvað gerðist um nóttina verður hann að taka skýringar...

Sjá meira

Lokasýning á Hamskiptunum

Leiksýning Vesturports Hamskiptin verður sýnd í allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 19. nóvember. Með aðalhlutverk í sýningunni fer Gísli Örn Garðarsson. Sýningin hefur nú verið sýnd að nýju við frábærar viðtökur í Þjóðleikhúsinu og er um að gera að festa sér miða á þessa mögnuðu sýningu hið allra fyrsta! Hamskiptin eftir Franz Kafka er ein af þekktustu skáldsögum 20. aldarinnar. Leiksýningin er í senn ógnvekjandi og fyndin en í verkinu segir frá sölumanninum Gregor Samsa, sem vaknar upp einn morguninn í líki risavaxinnar bjöllu. Líf hinnar hversdagslegu Samsafjölskyldu breytist á svipstundu í einkennilega martröð. Hamskiptin er mögnuð leikhúsupplifun...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Special Blood IEV er fljótandi gerfiblóð til ýmissa nota. Það rennur hægt og virkar mjög raunverulegt. Blóðið næst vel úr flestum efnum og það er í lagi að nota það í munn, s.s. sem fyllingu í gelatínhylki. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Blóðið er til í Dark og fæst í 4 stærðum: 50 ml. á kr. 1.350.- 100 ml. á kr. 2.100.- 500 ml. á kr. 7.600.- 1000 ml. á kr. 12.790.-...

Sjá meira

Auaksýning á Elskhuganum

Uppselt er á síðustu sýningu, föstudag 7. nóv. á Elskhuganum eftir Harold Pinter sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt undanfarið. Bætt hefur verið við aukasýningu þriðjudaginn 11. nóvember. Viðtökur gesta hafa verið mjög góðar og má m.a. benda á lofsamlega umsögn Árna Hjartarsonar hér á Leiklistarvefnum en hann segir að Elskhuginn sé „… sýning sem áhugafólk um leiklist og leikhús ætti ekki að missa af.“Miðapantanir eru á midasala@kopleik.is eða í síma 554 1985. Nánar á...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert