Þið munið hann Jörund
Eða hvað? Muniði ekki eftir honum Jörundi úr sögubókunum, hann kom til Íslands árið 1809 og gerðist kóngur um hundadagana. Hét víst Jörgen upp á dönsku enda upprunninn þar og þótti erfiður drengur og ódæll, prakkari og stríðnispúki. Hann var því snemma sendur á sjóinn og sigldi með bretum í mörg ár. Eða muniði kannski eftir honum í laginu Arídúarídúradei? „Í Danmörk fæddist og ólst hann upp en engan hlaut hann þar frama sú kotunga þjóð með kúastóð og kokhljóð var honum til ama…. Sem kóngur ríkti hann meður sóm´og sann eitt sumar á landinu bláa…..“ Hvað sem því...
Sjá meira


