Föstudagskvöldið 7. nóvember kl. 20.30 frumsýnir Leikfélag Rangæinga Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í Hellubíói á Hellu. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og Örn Árnason þýddi verkið. Fullkomið brúðkaup er sprúðlandi farsi þar sem mannlegur breiskleiki og illa ígrundaðar lygar koma af stað atburðarás sem getur ekki endað nema á einn veg. Með ósköpum.
Verkið greinir frá Bjarna sem vaknar að morgni brúðkaupsdags síns, eftir svaðalegt steggjapartý, í brúðarsvítu Stracta hótels á Hellu, með ókunnuga og nakta stúlku sér við hlið. Þar sem hann getur ekki fyrir sitt litla líf munað hvað gerðist um nóttina verður hann að taka skýringar hennar trúanlegar en það breytir því ekki að tilvonandi brúður hans er rétt ókomin á hótelið og góðu ráðin því í dýrari kantinum. Þau reyna því, með aðstoð Trausta, besta vinar og svaramanns Bjarna, og herbergisþernu sem flækist fyrir helbera óheppni inn í málið, að spinna lygavef svo að tilvonandi brúður komist ekki að neinu og af brúðkaupinu geti orðið.
2. sýning sunnudaginn 9. nóvember kl. 15.00
3. sýning föstudaginn 14. nóvember kl. 20.30
4. sýning sunnudaginn 16. nóvember kl. 20.30
5. sýning fimmudaginn 20. nóvember kl. 20.30
6. sýning laugardag 22. nóvember kl. 20.30
7. sýning sunnudaginn 23. nóvember kl. 15.00
Miðapantanir eru á netfanginu bbf@internet.is og í síma 699 3839. Miðaverð er 2.500 kr.