Fiðlarinn á þakinu í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, söngleikinn Fiðlarann á þakinu eftir Joseph Stein og Jerry Bock í þýðingu Þórarinns Hjartarsonar. Leikstjórar eru þau Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, tónlistarstjóri er Brynjólfur Brynjólfsson og bróðir hans Ingvar Brynjólfsson sér um leikmynd. Leikurinn gerist í rússneska smáþorpinu Anatevka, þar sem mjólkurpósturinn Tevye býr ásamt fjölskyldu sinni. Tevye á í mesta basli með dætur sínar. Hver með sínum hætti vilja þær ganga í berhögg við hefðina og finna eiginmenn upp á eigin spýtur. Tevye lætur undan tveim elstu dætrum sínum en þegar sú þriðja vill giftast manni sem ekki er gyðingur, afneitar hann henni. Baksvið...
Sjá meira


