Spilltur borgarstjóri og kynsveltur endurskoðandi
Borgarstjórinn liggur undir grun um fjárdrátt og lögreglan undirbýr gildru á móteli til að standa hann að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglufulltrúarnir tveir eru kannski ekki þeir allra hæfustu og samband annars þeirra við kynsveltan endurskoðanda í næsta herbergi einfaldar ekki framvinduna. Þegar við þetta bætast svo óöruggur öryggisvörður úr Ráðhúsinu, illskiljanlegur leigumorðingi og elskuleg borgarstjórafrú er ekki von á góðu. Svona hefst Óþarfa offarsi, átta hurða, léttgeggjaður farsi sem Leikfélag Kópavogs frumsýnir laugardaginn 21. febrúar næstkomandi. Verkið er eftir Paul Slade Smith og leikstýrt af Herði Sigurðarsyni sem einnig þýðir. Sýningin gerist í tveimur samliggjandi mótelherbergjum. Lögreglan hefur komið sér...
Sjá meira


