Author: lensherra

Arty Hour #11 í Tjarnarbíói

Arty Hour er viðburður á Tjarnarbarnum þar sem listamenn við vinnu í Tjarnarbíó stíga fram og segja frá verkum sínum. Listastundin er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu Tjarnarbíós að opna vinnusmiðjur listamanna fyrir áhorfandanum og hvetja til umræðna. Umræðuefnin í listastund Tjarnarbíós í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, ná milli Írans og Íslands, fjalla um Prómeþeif úr grísku goðafræðinni, fegurð, stjórnmál, þrýstinginn sem fylgir karlmennskunni og sviðssetningu sjálfsins, svo eitthvað sé nefnt. Fram koma: Nazanin Askari og Marta Nordal. Nazanin er fædd í Íran og hefur barist fyrir jafnrétti og frelsi til hugsana og tjáningar. Hún var dæmd til lífshættulegrar refsingar og...

Sjá meira

Fiðlarinn á þakinu í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, söngleikinn Fiðlarann á þakinu eftir Joseph Stein og Jerry Bock í þýðingu Þórarinns Hjartarsonar. Leikstjórar eru þau Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, tónlistarstjóri er Brynjólfur Brynjólfsson og bróðir hans Ingvar Brynjólfsson sér um leikmynd. Leikurinn gerist í rússneska smáþorpinu Anatevka, þar sem mjólkurpósturinn Tevye býr ásamt fjölskyldu sinni. Tevye á í mesta basli með dætur sínar. Hver með sínum hætti vilja þær ganga í berhögg við hefðina og finna eiginmenn upp á eigin spýtur. Tevye lætur undan tveim elstu dætrum sínum en þegar sú þriðja vill giftast manni sem ekki er gyðingur, afneitar hann henni. Baksvið...

Sjá meira

Konan við 1000° á Stóra sviðið

Vegna gífurlegrar aðsóknar verður leikritið Konan við 1000°, sem byggir á vinsælli skáldsögu Hallgríms Helgasonar, frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins fimmtudagskvöld. Verkið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Kassanum frá því í september og hlotið frábærar viðtökur. Þetta er fyrsta frumsýning leikstjórans Unu Þorleifsdóttur á Stóra sviðinu.   „Viðtökurnar hafa verið frábærar og mikill heiður að Konan við 1000° fái framhaldslíf á Stóra sviðinu” segir Una. Sýningar á Konunni við 1000° hefjast á Stóra sviðinu 26. febrúar og verður takmarkaður sýningafjöldi....

Sjá meira

Tíu litlir strandaglópar

HalaleikhópurinnTíu litlir strandaglópar eftir Agöthu ChristieLeikstjóri: Guðjón Sigvaldason. Þýðandi: Hildur Kalman Í fjórða sinn hefur Halaleikhópurinn fengið hinn flinka Guðjón Sigvaldason til þess að leikstýra en fyrri sýningarnar hans þrjár voru hver annarri betri og skemmtilegri. Gaukshreiðrið komst á fjalir Þjóðleikhússins 2008 sem ahyglisverðasta leiksýning þess árs en Fílamaðurinn og Kirsuberjagarðurinn voru ekki síðri uppfærslur. Guðjóni tekst einnig afar vel upp núna þegar hann fæst við eitt þekktasta leynilögguverk Agöthu Christie; þar sem tíu manneskjur sem týna tölunni hver af annari.   Agatha Christie skrifaði verkið fyrst sem skáldsögu og er hún talin hennar þekktasta og vinsælasta saga. Hún...

Sjá meira

Bót og betrun á Selfossi

Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn, 27. febrúar, gamanleikinn BÓT OG BETRUN eftir Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar boltinn er einu sinni farinn að rúlla. Bót og betrun er gamanleikur eins og þeir gerast bestir, hefðbundinn farsi með misskilningi, flækjum og pínlegum aðstæðum af öllu tagi eins og efnið ber með sér. Verkið á erindi við alla sem vilja upplifa gleði og glaum og gera...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert