Author: lensherra

Breska verðlaunaverkið At í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 18. september kl. 20 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á Nýja sviðinu breska verðlaunaverkið At eftir Mike Bartlett í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Gretar Reynisson gerir leikmynd og búninga en Hallur Ingólfsson samdi tónlistina. Tveir nýútskrifaðir leikarar eru í leikhópnum, leikarar eru Valur Freyr Einarsson, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Eysteinn Sigurðarson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Sagan: Tvö störf. Þrír umsækjendur. Andrúmsloftið er rafmagnað. Vinnufélagar bíða eftir mikilvægu starfsviðtali og fjandinn er laus. Fals og lygi svífa yfir vötnunum. Persónurnar leggja sig fram um að atast hver í annarri af grimmilegu miskunnarleysi. Staðan er fullkomlega ótrygg og áhorfendur komast ekki hjá því...

Sjá meira

Leiklistarsaga Bíldudals á bók

Sögusagnir eru margar. Ein þeirra er sú að Bílddælingar geri meira af því að skemmta sér en að vinna. Meðan íbúar næsta þorps geri akkúrat öfugt. Ekkert skal fullyrt um þessa sögn enda er hún bara saga ef til vill bara þjóðsaga. Hitt er hinsvegar alveg ljóst og marg vitað að list hefur allt frá upphafi þorpsmyndunnar á Bíldudal verið þar í miklum metum. Leiklist hefur jafnan verið þar fremst í flokki en fyrstu heimildir um leiksýningar á Bíldudal eru frá árinu 1894. Síðan þá hefur verið leikið í þorpinu af miklum krafti. Í þessari bók rekur Elfar Logi...

Sjá meira

Ný íslensk óperetta á Ísafirði

Hin nýstofnaða Ópera Vestfjarða frumsýnir sitt fyrsta verkefni núna á fimmtudag. Það er óperettueinleikurinn „Eitthvað sem lokkar og seiðir…“. Verkið fjallar um söng- og leikkonuna Sigrúnu Magnúsdóttur, sem nefnd hefur verið „óperettudrottning Íslands“. Það er Elfar Logi Hannesson sem samdi verkið og er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Óperusöngkonan Sigrún Pálmadóttir bregður sér í ýmis gervi óperettudrottningarinnar og flytur mörg þeirra laga sem gerðu hana fræga á sínum tíma, m.a. úr óperettunum Nitouche, Brosandi land, Leðurblökunni o.fl. Píanóleikarinn Beáta Joó sér um meðleikinn á píanóið. Óperettueinleikurinn verður frumsýndur fimmtudaginn 17. september kl.20.00 í Hömrum á Ísafirði. Önnur sýning verður laugardaginn 19....

Sjá meira

Í hjarta Hróa hattar, frumsýning um helgina

Leikritið Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr í uppfærslu Vesturports verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 12. september kl. 19.30 . Gleymdu öllu því sem þú þykist vita um Hróa hött! – Hér er goðsögunni um þennan fræga útlaga snúið á hvolf í magnaðri nýrri leiksýningu, sem hefur nú þegar slegið í gegn beggja vegna Atlantshafsins. Í þessari nýju sýningu úr smiðju Vesturports, Þjóðleikhússins og Royal Shakespeare Company ræna Hrói höttur og hinir miskunnarlausu liðsmenn hans hvern þann sem vogar sér inn í Skírisskóg, án þess að gefa nokkuð til hinna fátæku. Hér er það hin hugrakka...

Sjá meira

Lokaæfing í Tjarnarbíói

Tjarnarbíó kynnir með stolti fyrstu samstarfssýningu leikársins. Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur á afmælisdegi höfundar 4. október. Uppsetningin er hluti af lestrarhátíð Bókmenntaborgar sem í ár er tileinkuð Svövu og hennar verkum. Hjón á fertugsaldri loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman mást út mörk raunveru og ímyndunar. Umgjörð verksins er hið sára hlutskipti manneskjunnar að vera í stöðugri leit að öryggi í ótryggum og hættulegum heimi, en fyrst og fremst er staða og samskipti kynjanna, átök og ávinningar hjónabandsins, hlutskipti tveggja einstaklinga sem ákveða að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert