Heimkoman í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. október á Stóra sviðinu leikritið Heimkomuna eftir nóbelsverðlaunaskáldið Harold Pinter í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar leikara og leikstjóra en það er einmitt afmælisdagur leikskáldsins Harolds Pinters. Óhætt er að segja að einvalalið íslenskra leikara fari með helstu hlutverk í sýningunni. Ingvar E. Sigurðsson leikur slátrarann Max en Ingvar hefur síðustu vikur fengið feykigóða dóma fyrir leik sinn í stórmyndinni Everest eftir Baltasar Kormák. Auk Ingvars leika í sýningunni Eggert Þorleifsson, Björn Hlynur Haraldsson, Ólafur Egill Egilsson, Snorri Engilbertsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Harold Pinter lést árið 2008 en hann fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005. Hann er eitt þekktasta nútímaleikskáld Breta og var...
Sjá meira


