Author: lensherra

Einn rjúkandi kaffibolli í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir nýtt íslenskt leikrit eftir heimamanninn Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Don Ellione, en þetta er í annað sinn sem hann leikstýrir hjá Leikfélagi Ölfuss. Verkið nefnist Einn rjúkandi kaffibolli og fjallar um rithöfund sem venur komur sínar á kaffihús eitt í von um að fá innblástur við bókaskrif. Það hleypur á snærið hjá honum þegar bæjarróninn Elísa veldur spaugilegri uppákomu og fá áhorfendur að sjá skrif rithöfundarins lifna við. Stundum má þó varla sjá skilin milli þess raunverulega og skáldskapar. Jafnvel persónurnar sjálfar efast um geðheilbrigði rithöfundar, því ekki fer allt eins og ætlað er og grípur...

Sjá meira

Ævintýri í álfheimum

Benedikt búálfur Leikfélag Norðfjarðar Leikstjórn: Guðmundur L. Þorvaldsson Árni Friðriksson rýnir í sýningu Þann 3. október frumsýndi Leikfélag Norðfjarðar Benedikt búálf í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Um er að ræða söngleik fyrir börn á öllum aldri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Leikritið er í raun mjög hefðbundið ævintýraleikrit um baráttu góðs og ills. Benedikt búálfur verður fyrir því láni að hitta Dídí mannabarn og fara með hana í skoðunarferð til álfheima. Þegar í álfheima er komið hafa dökkálfar numið tannálfinn á brott og Benedikt fær Dídí mannabarn, Daða dreka og Jósafat mannahrelli til hjálpa sér að bjarga tannálfinum og um...

Sjá meira

Fallegar myndir af mæðrum og dætrum

Mæður Íslands Leikfélag Mosfellssveitar og Miðnætti Leikstjórn: Agnes Wild Hrund Ólafsdóttir rýnir sýningu Listahópurinn Miðnætti er alinn upp í Leikfélagi Mosfellssveitar. Þær Agnes Wild leikstjóri, Eva Björg Harðardóttir leikmynda- og búningahönnuður og Sigrún Harðardóttir tónlistarhöfundur, og flytjandi ásamt Lofti S. Loftssyni, eru ungar og flottar listakonur sem hafa gerst atvinnumenn eftir nám í útlöndum. Sem hópurinn Miðnætti sviðsetja þær nú verk í annað sinn fyrir leikfélagið sitt en hið fyrra var Ronja ræningjadóttir sem var valin athyglisverðasta áhugasýningin og sýnd í Þjóðleikhúsinu í vor. Mæður Íslands er einlæg sýning með litlum nafnlausum myndum, samin af leikstjóranum og tíu manna...

Sjá meira

Benedikt búálfur á Norðfirði

Leikfélag Norðfjarðar frumsýnir söngleikinn um Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson í Egilsbúð laugardaginn 3. október. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Dídí mannabarn rekur augun í Benedikt, þar sem hann stendur nakinn, en með handklæði um sig miðjan, í einu horninu á herbergi hennar – en búálfar eru aðeins sýnilegir mannabörnum þegar þeir eru blautir. Benedikt er nýkominn úr baði. Örlög búálfa eru með þeim ósköpum að þegar þeir lenda í þeim hremmingum að verða mannabörnum sýnilegir, þá ráða mannabörnin hvað verður um þá. Dídí og Bendedikt fara saman til álfheima og lenda í ýmsum ævintýrum. Frumsýning laugardaginn 3....

Sjá meira

Lokaæfing í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur á afmælisdegi höfundar 4. október. Uppsetningin er hluti af lestrarhátíð Bókmenntaborgar sem í ár er tileinkuð Svövu og hennar verkum. Hjón á fertugsaldri loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman mást út mörk raunveru og ímyndunar. Umgjörð verksins er hið sára hlutskipti manneskjunnar að vera í stöðugri leit að öryggi í ótryggum og hættulegum heimi, en fyrst og fremst er staða og samskipti kynjanna, átök og ávinningar hjónabandsins, hlutskipti tveggja einstaklinga sem ákveða að deila saman sjálfskipaðri útlegð, sú saga sem...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert