Author: lensherra

Þetta er grín á leið í Hörpuna, án djóks

Menningarfélag Akureyrar mun senn fara með verkið Þetta er grín, án djóks í leikferð í höfuðborgina, en leikritið verður flutt í Eldborgarsal Hörpu þann 28. nóvember. Þetta er grín án djóks, er sviðsetning Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Menningarhúsið Hof og er samið af þeim Dóra DNA og Sögu Garðarsdóttur sem jafnframt leika aðalhlutverkin. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Verkið fjallar um tvo uppistandara sem búa saman og eiga erfitt með að fóta sig í brothættu og rétthugsandi samfélagi nútímans. Hefur verkið hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda og verið sýnt fyrir fullu húsi Í Hofi í allt haust. Nú...

Sjá meira

Stuttverkadagskrá Hugleiks

Á föstudaginn 20. nóvember mun Leikfélagið Hugleikur frumsýna stuttverkadagskrá sem hefur hlotið heitið Et tu Hugleikur? Þar munu svik hvers konar vera í forgrunni, könnuð til hlítar og, vonandi, afhjúpuð. Öll verkin eru frumsamin en boðið er á sjö brögðótta þætti að þessu sinni. Einnig verða leiklesnir tveir afmælisþættir Bandalags íslenskra leikfélaga. Kynnar verða Árni Hjartarson og Sigríður Bára Steinþórsdóttir. Verkin sem leikin verða: Örlagaríkt síðdegi eftir Magnús Teitsson og Orra Ingþórsson Leikstjóri Hjörvar Pétursson Leikarar: Elísabet Katrín Friðriksdóttir, Þórarinn Stefánsson, Björgvin Gunnarsson. Umvafin englum eftir Maríu Björt Ármanssdóttur Leikstjóri Björgúlfur Egill Pálsson Leikarar: Halldóra Ósk Öfjörð, Ingvar Örn Arngeirsson...

Sjá meira

Töfratárið, frumsýning í Mosfellsbæ

Töfratárið er nýtt íslenskt leikrit eftir Agnesi Wild í leikstjórn hennar verður frumsýnt sunnudaginn 22.11.2015 klukkan 15:00. Töfratárið fjallar um stúlkuna Völu sem þykir fátt skemmtilegra en að leika sér með bangsann sinn. Það er aðfangadagur og móðir Völu sem er læknir þarf að fara í vinnuna. Völu þykir það ósanngjarnt, grætur og bangsi huggar hana. En það sem Vala vissi ekki er að allir bangsar eru gæddir töframátti, og þegar barn grætur tárum sem það á alls ekki að gráta, geta bangsar lifnað við! Töfratárið er fjörug, falleg og fræðandi sýning fyrir börn frá 3ja ára aldri og...

Sjá meira

Arty Hour #15 í Tjarnarbíói

Arty Hour nóvembermánaðar verður haldinn 16. nóvember kl. 20:00. Á þessum viðburðum fáum við að heyra frá þeim listamönnum sem vinna í Tjarnarbíó, annað hvort að uppsetningu verka eða við aðra listasmíði í vinnustofum í húsinu. Á þessum viðburði koma fram: Sómi þjóðar – Könnunarleiðangur til Koi Inga&Rósa – The Valley Ásgerður og Alex – Reykjavík Dance Festival Agnes Wild –...

Sjá meira

65 ára afmælishátíð – Stuttverkin tilbúin

Valnefnd hefur lokið störfum og valið þau þrjú af sjö innsendum verkum sem notuð verða við 65 ára afmælisgjörning aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga vikuna 16.-22. nóvember. Valnefndina skipuðu: Ágúst Magnússon Bernharð Arnarson Gísli Björn Heimisson Þráinn Sigvaldason Ylfa Mist Hlegadóttir Innsend verk og leyninöfn höfunda: Afmælisveislan hans Dóra      Skjöldur Albatrossinn                              Fuglabaninn Hjartaslagur                              Lilja Afmælisveislan                         Dingulskott Ljónynjurnar  ...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert