Author: lensherra

Tvær sýningar fyrir eina

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikritin Sumarbúðir og Hvíldu í friði nú um helgina. Unglingadeildin sem telur nú tvo hópa, eldri og yngri, hefur í haust verið á vikulegum leiklistarnámskeiðum. Námskeiðunum sem slíkum er lokið en nú er komið að leiksýningum sem eru öðrum þræði afrakstur námskeiðanna. Yngri hópur sýnir leikritið Sumarbúðir sem fjallar um hópur barna sem fer í sumarbúðir en uppgötvar sér til mikillar skelfingar að þar er allt meira og minna bannað. Og hvað er þá til ráða nema auðvitað taka til sinna ráða? Eldri hópur sýnir draugatryllinn Hvíldu í friði sem segir frá unglingum sem fara...

Sjá meira

NEATA leiklistarhátíðin  7. og 8. október 2016

Leiklistarhátíðir norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins, NEATA, hafa verið haldnar á tveggja ára fresti frá árinu 2000. Hátíðin hefur gengið á milli aðildarlandanna í ákveðinni röð og árið 2016 var komið aftur að Norðmönnum. Því miður stendur illa á hjá norska bandalaginu, það er eiginlega búið að leggja það niður og verið er að færa verkefni þess til landshlutasambandanna. Þannig að hátíðin mun ekki verða haldin þar á næsta ári. Þetta var ekki vitað fyrr en sl. sumar og brugðust Færeyingar þá skjótt við og buðust til að halda stuttverkahátíð haustið 2016 í nafni NEATA en fyrirvarinn var orðinn allt of stuttur...

Sjá meira

Láttu bara eins og ég sé ekki hérna

Verkið Láttu bara eins og ég sé ekki hérna er grískur þátttökuharmleikur þar sem áhorfandinn lærir að þekkja sjálfan sig upp á nýtt. Við bjóðum áhorfendum að koma í Tjarnarbíó og gangast undir persónuleikapróf þar sem hann er leiddur í gegnum stig sjálfsupplýsingar og þarf að horfast í augu við sína innri pöndu. Verkið veltir því upp hvað það þýðir að vera manneskja á tímum stanslauss eftirlits og hvernig við sköpum sjálfsmynd okkar þegar einkalífið er orðið að eign stjórnvalda og stórfyrirtækja. ATH: Óhefðbundinn sýningartími og takmarkaður miðafjöldi. Verkefnið er uppfærsla leikhópsins Sóma þjóðar. Sóma þjóðar er ætlað að vera...

Sjá meira

Leikfélagið Borg

Formaður: Guðný Tómasdóttir gudny@ormsstadir.is 8940932 Ritari: Kristbjörg Sigtryggsdóttir krissa86@hotmail.com 7731944 Gjaldkeri: Jóhann Pétur Jóhannsson Johann.Petur.Johannsson@landsvirkjun.is 6119150 Meðstjórnandi: Bjarki Þór Guðmundsson Meðstjórnandi: Gunnar Bjarni Kristinsson Félagið starfar í Gímsnes- og...

Sjá meira

KATE, frumsýning í Tjarnarbíói

Lost Watch í samstarfi við Miðnætti og Tjarnarbíó frumsýnir KATE, gamanleik um íslenskt fjölskyldu- og herstöðvalíf í seinni heimsstyrjöldinni í Reykjavík. Ísland, 1940. Bretarnir koma! Þegar 25.000 breskir hermenn lenda í Reykjavík og hertaka landið, hafa íslensku konurnar eitthvað nýtt til að einbeita sér að. KATE fjallar um íslenska fjölskyldu í seinni heimsstyrjöldinni, Selmu uppreisnargjarnri dóttur þeirra og Kötu indælli sveitastelpu í vist hjá þeim. Hér er á ferðinni lífleg og skemmtileg sýning með lifandi tónlist um sameiginlega sögu Íslendinga og Breta. Leikstjóri er Agnes Wild. Leikarar eru Olivia Hirst, Rianna Dearden, Chris Woddley, Agnes Wild, Alex Dowding. Sýningin er...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert