Grýla, jólasýning á Akureyri
Grýla er reið. Nei, það er víst ekki alveg rétt því Grýla er brjáluð! Það er búið að bora gat í gegnum heimilið hennar og hún var ekki einu sinni beðin um leyfi. Það er allt á floti í hellinum, heiti potturinn hennar míglekur eftir aðförina og því ekki hægt að búa þar lengur. Ekki einu sinni fyrir tröllskessur. Grýla er heimilislaus. Fótunum hefur verið kippt undan henni. Hún sem hefur vandað sig svo við að viðhalda sínum nýja lífstíl undanfarin ár. Hún er dugleg að mæta í stuðningshópinn sinn ,,Við borðum ekki börn – lengur”, komin með nálgunarbann...
Sjá meira


