Author: lensherra

Kardemommubærinn í Heimalandi

Leikfélag Austur-Eyfellinga frumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Fólk og ræningjar í Kardemommubæ laugardaginn 19. mars kl. 15.00 í Félagsheimilinu Heimalandi. Leikendur eru 17 en  30 – 40 manns koma að sýningunni. Leikstjóri er Sigurður Hróarsson. Ljósameistari er Þorsteinn Sigurbergsson og tólnlistarstjóri Ingibjörg Erlingsdóttir Leikarar eru á öllum aldri frá 10 – 70 ára.  Börnin sem taka þátt í leikritinu hafa öll verið í leiklistarkennslu hjá leikfélaginu undanfarin ár, sum allt að fjögur ár. Leiklistarkennslan fer fram allan veturinn einu sinni i viku. Það má segja að allt sveitarfélagið taki þátt í þessari uppfærslu.  Þáttakendur koma frá Skógum í austri og Hvolsvelli í vestri og alls...

Sjá meira

Leikari á sjúkrahúsi eftir kitl í spítalagríni

Þór Ragnarsson, sem upphaflega átti að leika aðalhlutverkið í uppsetningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs á verkinu Allra meina bót, er á leið í uppskurð eftir að hafa slasast á æfingu nokkrum dögum fyrir frumsýningu. „Það átti að kitla mig í verkinu og mig kitlar svo svakalega að á einni æfingunni flaug ég fram úr rúminu og lenti á því. Ég sleit taug í öxlinni og er á leið í uppskurð á morgun,“ segir Þór. „Þetta var fjórum dögum fyrir frumsýningu. Ég var sendur suður í myndatöku með hraði og fékk út úr henni tveimur dögum síðar.“ Einar Rafn Haraldsson, sem leikstýrir verkinu...

Sjá meira

Blessað barnalán í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi sl. laugardag gamanleikinn Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Sýnt er í Lyngbrekku. Næstu sýningar: 5. sýning föstudaginn 18. mars kl. 20.30 6. sýning laugardaginn 19. mars kl. 20.30 7. sýning miðvikudaginn 23. mars kl. 20.30 8. sýning fimmtudaginn 24. mars kl. 20.30 Miðaverð er kr. 2.500 Miðapantanir í síma 846 2293 og á midi.is Veitingasala á sýningum – enginn posi á...

Sjá meira

Ekkert að óttast í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir nýjan íslenskan gleðiharmleik, Ekkert að Óttast, sem saminn er af meðlimum höfundasmiðju leikfélagsins,  laugardaginn 19. mars kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu. Leikfélagið fagnar í ár 80 ára starfsafmæli sínu og í tilefni af því var ákveðið að setja upp verk sem væri samið, leikstýrt og flutt af  félögum í leikfélaginu sjálfu. Höfundarnir sem komu að leikritinu voru 12 talsins og var verkið skrifað á innan við mánuði.  „Við sáum fljótlega að við vorum með hálfgerða sápuóperu í höndunum.  Plottin hlóðust upp og lítið var um lausnir framan af, en það small allt saman í lokin. Úr varð...

Sjá meira

Hystory í Hofi í byrjun apríl

Hystory, nýtt íslenskt leikrit eftir Kristínu Eiríksdóttur sem sló í gegn í Borgarleikhúsinu árið 2015, verður sýnt í Hofi hjá Menningarfélagi Akureyrar þann 1. og 2. apríl næstkomandi. Kristín Eiríksdóttir var tilnefnd til Menningarverðlauna DV fyrir Hystory 2016 og verkið fékk einróma lof gagnrýnenda og fjöldan allan af tilnefningum til Grímuverðlaunanna 2016. Leikritið er ísköld hversdagskómedía eftir Kristínu Eiríksdóttur. Dagný, Begga og Lilja voru bestu vinkonur í grunnskóla. Þegar þær voru fimmtán ára hættu þær að tala saman. Síðan eru liðin tuttugu og eitthvað ár. Þær mætast stundum. Í búðinni, úti að labba eða í ræktinni. Brosa, kinka kolli, segja: Sæææl… En hendurnar dofna og þær verkjar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert