Leikritunarnámskeið LS og LÖ
Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss taka höndum saman og standa fyrir leikritunarnámskeiði 16.-27. apríl. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði síðastliðið haust en okkur fannst liggja í loftinu að félagar í þessum nágrannafélögum hefðu þörf fyrir að læra undirstöðuatriði leikritunar. Sótt var um styrk til Uppbyggingarsjóðs Suðurlands til að standa straum af kostnaði við námskeiðið og var markmiðið að þátttakendur gætu sótt það án endurgjalds. Styrkurinn var veittur og verkefnið sett af stað. Það var eins og við manninn mælt að það varð uppbókað á svipstundu og eru 18 þátttakendur skráðir til leiks. Námskeiðið hefst...
Sjá meira


