Í gær miðvikudaginn 6. apríl voru skráningar í prufur fyrir hlutverk í Bláa hnettinum. Gríðarlegur fjöldi barna mætti og munu næstu dagar fara í að hitta börnin og sjá hæfileika þeirra. Borgarleikhúsið leitar að 22 börnum, sem geta sungið, dansað og leikið, til að fara með hlutverk í fyrstu uppfærslu næsta leikárs sem verður Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason. Bergur Þór gerir nýja leikgerð ásamt því að leikstýra og Kristjana Stefánsdóttir semur tónlistina. Æfingar hefjast í maí en áætluð frumsýning er 17. september.

Á bláum hnetti lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Þetta eru eiginlega villibörn því enginn skipar þeim fyrir verkum. Börnin sofna þar sem þau verða þreytt og borða þegar þau eru svöng en leika sér þar sem þeim dettur í hug. Eitt kvöldið þegar Brimir og Hulda eru stödd í Svörtufjöru birtist stjarna á himni sem stefnir beint á þau. Stjarnan lendir í fjörunni með mikilli sprengingu en í reyknum mótar fyrir skuggalegri veru sem starir út í myrkrið. Þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um myrka skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá sem aldrei fyrr á vináttu og ráðsnilld barnanna á bláa hnettinum.

Sagan af Bláa hnettinum eftir Andra Snæ hefur komið út á 12 tungumálum og hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999, Janusz Korczak honorary award 2000 og Vestnorrænu Barnabókaverðlaunin 2001.

Aðstandendur Höfundur: Andri Snær Magnason | Leikgerð & leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson | Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir | Búningar: María Th. Ólafsdóttir | Tónskáld & tónlistarstjóri: Kristjana Stefánsdóttir | Danshöfundur: Chantelle Carey