Author: lensherra

Leikfélag Mosfellssveitar býður í leikhús

Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl kl. 15 verður barnaleikritið Ævintýraþjófarnir frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Í tilefni þess að Leikfélag Mosfellssveitar var valið bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2015 langar okkur að þakka fyrir okkur og því er öllum bæjarbúum, ungum sem öldnum, boðið á sýninguna. Ævintýraþjófarnir er nýtt barnaleikrit byggt á gömlum íslenskum ævintýrum skrifað af Maríu Guðmundsdóttur og Brynhildi Sveinsdóttur ásamt leikhóp og leikstjóra. Þegar nokkrir félagar frétta af elstu og dýrmætustu ævintýrabók Íslendinga sem inniheldur öll þau ævintýri sem Íslendingar hafa skrifað, ætla þau heldur betur að græða. Þau brjótast inn í Sögusafnið þar sem bókin hefur verið varðveitt...

Sjá meira

Aðalfundur og einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga 2016

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn á Seyðisfirði dagana 7. og 8. maí 2016. Í tengslum við aðalfundinn verður haldinn einþáttungahátíð í Félagsheimilinu Herðubreið föstudaginn 6. maí. Einþáttungahátíðin verður sennilega sett kl. 20.00 föstudagskvöldið 6. maí. Aðalfundurinn verður settur laugardagsmorguninn 7. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 8. maí. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum laugardaginn 7. maí. Frestur til að senda Þjóðleikhúsinu umsóknir rennur út miðvikudaginn 27. apríl. Sækja skal um í hinu nýja umsóknarkerfi á Leiklistarvefnum. Gisting verður á vegum Hótelsins Öldunnar á Seyðisfirði, þó ekki öll herbergi í sama húsinu en mjög...

Sjá meira

Sviðslistahátíðin UNGI 2016

Sviðslistahátíðin UNGI fyrir unga áhorfendur verður haldin dagana 20. til 23. apríl. Hátíðin er haldin í fjórða sinn af ASSITEJ á Íslandi, sem eru samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur, en skartar nafninu UNGA í fyrsta sinn í ár. UNGI fer fram víðsvegar í Reykjavík en höfuðstöðvar hátíðarinnar verða í Tjarnarbíói. Þar verða skemmtilegar sýningar dagana 21. og 23. apríl og má með sanni segja að öllum landsmönnum sé boðið í leikhús því aðgangur er ókeypis á viðburði UNGA. Hið eina sem þarf að gera er að mæta tímanlega á sýningarstað og tryggja sér miða, sem afhentir verða klukkustund...

Sjá meira

Leikritunarnámskeið LS og LÖ

Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss taka höndum saman og standa fyrir leikritunarnámskeiði 16.-27. apríl. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði síðastliðið haust en okkur fannst liggja í loftinu að félagar í þessum nágrannafélögum hefðu þörf fyrir að læra undirstöðuatriði leikritunar. Sótt var um styrk til Uppbyggingarsjóðs Suðurlands til að standa straum af kostnaði við námskeiðið og var markmiðið að þátttakendur gætu sótt það án endurgjalds. Styrkurinn var veittur og verkefnið sett af stað. Það var eins og við manninn mælt að það varð uppbókað á svipstundu og eru 18 þátttakendur skráðir til leiks. Námskeiðið hefst...

Sjá meira

Fullkomið brúðkaup á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir sunnudaginn 24. apríl gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi er Örn Árnason og leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur, hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Leikritið segir frá ungu fólki sem er að glíma við ástina, verða ástfangið, hætta að vera ástfangið og að verða ástfangið af þeim sem þau mega ekki vera ástfangin af. Brúðkaupsdagurinn er runninn upp. Brúðguminn vaknar með konu sér við hlið. Hann hefur aldrei séð hana fyrr. Hver er þessi kona? Hvað gerðist kvöldið áður? Hann flækist inní atburðarás sem hann ræður ekkert við, brúðurin á leiðinni,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert