Author: lensherra

Baldursbrá aftur á svið í Hörpu

Vegna fjölda áskorana verður ævintýraóperan Baldursbrá sýnd á þremur aukasýningum í Norðurljósasal Hörpu dagana 20.-22. maí nk. Óperan er eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson og fékk mikið lof þegar hún var frumsýnd. Aukasýningarnar verða sem hér segir:   Föstudaginn 20. maí 2016 kl. 19.00   Laugardaginn 21. maí 2016 kl. 14.00   Sunnudaginn 22. maí 2016 kl. 14.00 Óperan lýsir ævintýralegu ferðalagi Baldursbrár um heiðar Íslands svo hún megi njóta sólarlagsins ofan af fjallstindi. Við sögu koma glaðbeittur Spói, illvígur Hrútur, slóttugur Rebbi og yrðlingar hans. Söngvarar eru Fjóla Nikulásdóttir í hlutverki Baldursbrár, Eyjólfur Eyjólfsson sem Spói, Davíð Ólafsson er...

Sjá meira

Súperstar á Laugarbakka

Leikdeild Umf. Grettis á Laugarbakka í Miðfirði í samstarfi við Leikhópinn á Hvammstanga setti upp rokkóperuna Súperstar síðustu páska í Félagsheimilinu Hvammstanga. Þátttakendur sem voru allir heimamenn voru 38 talsins og var sýnt fyrir fullu húsi í fimm skipti.  Ákveðið var að setja upp áhorfendapalla með því að stafla upp 600 vörubrettum svo að allir sæu vel til sviðs.  Leikstjóri var Siguður Líndal Þórisson sem er nýfluttur í heimahaga sína eftir 20 ára búsetu í London. Alls var áhorfendafjöldi um 900 manns og tókust sýningar mjög...

Sjá meira

Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2015-2016

Þjóðleikhússtjóri, Ari Matthíasson, tilkynnti um valið á hátíðakvöldverði aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði laugardaginn 7. maí sl.: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og þriðja sinn. Áhugasýning ársins hefur verið kærkomið tækifæri fyrir höfuðborgarbúa að upplifa þá grósku sem einkennir starf hinna fjölmörgu sjálfstæðu leikfélaga á Íslandi. Að þessu sinni sóttu alls sextán leikfélag um að koma til greina við valið með sautján sýningar. Hlutverk dómnefndar var ekki öfundsvert því mikil fjölbreytni og hugmyndaauðgi einkenndi sýningarnar í ár. Farsar, söngleikir, spunasýningar, erlend klassík og ný íslensk leikritun eru meðal þess sem áhugaleikfélögin...

Sjá meira

Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu

Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjöðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert