Author: lensherra
Ævintýrakistan – Aukasýning
Posted by lensherra | maí 3, 2017 | Fréttir, Vikupóstur |
Vegna fjölda eftirspurna hefur verið ákveðið að slá upp aukasýninguá Ævintýrakistunni Hjá Leikfélagi Sólheima laugardaginn 6. maí klukkan 14:00 í Íþróttaleikhúsinu á Sólheimum. Ýmislegt nýtt á eftir að koma upp úr ævintýrakistunni og heilla ykkur upp úr skónum. Það spáir skrítnum sögum, sól og blíðu. Ekki láta þig vanta! Leikfélag Sólheima sýnir nýtt íslenskt barnaleikrit, Ævintýrakistan. Höfundur er leikstjórinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson en mun hann einnig bregða sér í búning og sýna sínar bestu hliðar. Tónlistina semur Þröstur Harðarson, kokkur á Sólheimum og sprellari. Í Ævintýrakistunni eru sett saman þrjú þekkt Grimms ævintýri – Gullgæsin, Stígvélaði kötturinn og Brimarborgarhljómsveitin. Rúmur...
Sjá meiraÆvintýrakistan á Sólheimum
Posted by lensherra | apr 29, 2017 | Fréttir, Gagnrýnandinn |
Leikfélag Sólheima: Ævintýrakistan Höfundur og leikstjóri: Guðmundur L. Þorvaldsson Undirrituð brá sér ásamt fríðu föruneyti á Sólheima í Grímsnesi til að sjá sýningu Sólheimaleikhússins er nefnist Ævintýrakistan. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og er hann einnig höfundur handrits og söngtexta. Verkið er samsett úr þremur þekktum ævintýrum, Gullgæsinni, Stígvélaða kettinum og Brimaborgarhljómsveitinni. Tónlistina samdi Þröstur Harðarson, kokkurinn á staðnum en hann leikur einnig nokkur hlutverk í sýningunni. Það er alltaf sérstök og yndisleg upplifun að koma á Sólheima. Friðsæld og eindæma veðurblíða virðast einkenna staðinn. Við ferðuðumst í slydduéli og vetrarlegu veðri frá Þorlákshöfn allt þar til komið var á Sólheima...
Sjá meiraLeikfélag Kópavogs frumsýnir Svarta kassann
Posted by lensherra | apr 27, 2017 | Fréttir, Vikupóstur |
Svarti kassinn, nýtt frumsamið leikverk, verður frumsýnt af Leikfélagi Kópavogs föstudaginn 28. apríl kl. 20.00 í Leikhúsinu við Funalind. Verkefnið er samsköpunarverkefni í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og hefur verið í vinnslu með hléum síðan i nóvember. Hvað er svarti kassinn? Er svarti kassinn Pandórubox? Er hann leikhús? Er hann lífið sjálft? Réttu barni kassa og það reynir að opna hann. Réttu því fleiri kassa og barnið byggir turn. Forvitnin, þekkingarþráin og sköpunarþörfin er inngróin og við viljum rannsaka, uppgötva, eiga og nota það sem við finnum. Manneskjunni virðist skapað að skapa til góðs eða ills. Við stöndumst ekki freistinguna...
Sjá meiraÆvintýrakistan, lokasýningarhelgi
Posted by lensherra | apr 24, 2017 | Fréttir, Vikupóstur |
Leikfélag Sólheima sýnir um þessar mundir nýtt íslenskt barnaleikrit, Ævintýrakistuna eftir Guðmund Lúðvík Þorvaldsson sem einnig leikstýrir verkinu. Tónlistina semur Þröstur Harðarson, kokkur á Sólheimum. Í Ævintýrakistuni eru sett saman þrjú þekkt Grimms ævintýri, Gullgæsin, Stígvélaði kötturinn og Brimarborgarhljómseitin. Rúmur helmingur íbúa og starfsmana Sólheima koma á einhvern hátt að sýningunni. Ekki missa af nýju íslensku barnaleikriti. Nú eru bara tvær sýningar eftir: Laugardaginn 29. apríl Lokasýning verður sunnudaginn 30. apríl Sýningar eru í Íþróttaleikhúsinu á Sólheimum, byrja kl. 14.00 og taka um klukkutíma. Miðasalan er í síma 847 5323 eða solheimar@solheimar.is Upplýsingar www.solheimar.is Opið verður í kaffihúsinu Grænu könnunni...
Sjá meiraOpnunartímar
Vörur
-
Gervinef - Foam Nose frá Kryolan
kr.2.970
-
Mascaraburstar fíber 25 stk.
kr.1.090
-
Thin & Fix - fyrir FX Design Colors
kr.2.190
Nýtt og áhugavert
-
Eyru latex
kr.3.240
-
Gerviauga
kr.1.970
-
Mastix Spirit Gum Remover & Thinner, Kryolan
kr.1.420 – kr.2.080Price range: kr.1.420 through kr.2.080
-
Vatnslitabox Grimas - 6 eða 12 litir, Standard eða XL
kr.4.790 – kr.19.900Price range: kr.4.790 through kr.19.900


