Author: lensherra

Fréttir af aðalfundi Leikfélags Selfoss

Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún þann 10. maí. Mæting á fundinn var góð og létt yfir fólki og fundinum að vanda. Farið var yfir starfið á leikárinu sem var að ljúka, teknir inn fjölmargir nýjir félagar og kosið í stjórn. Meðal þess sem kom fram á fundinum var að Guðfinna Gunnarsdóttir vinnur nú að undirbúningi á leiksýningu sem hún mun leikstýra næsta haust hjá leikfélaginu. Verkið verður kvennasýning en hún er unnin upp úr skáldverkum hinnar kanadísku Margaret Atwood. Einnig var afmælisnefnd leikfélagsins kynnt en Leikfélag Selfoss verður 60 ára þann 9. janúar 2018....

Sjá meira

Síðustu sýningar á Svarta kassanum

„Stundum getur verið svo ólýsanlega gaman að fara í leikhús.“ Sýning Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn hefur hlotið mikið lof síðan hún var frumsýnd í lok apríl. Nú eru síðustu forvöð að sjá hana þar sem aðeins tvær sýningar eru eftir, mið. 31. maí og fim. 1. júní. Benda má á umfjöllun Jakobs Jónssonar í Kvennablaðinu og Sigríðar Hafsteinsdóttur á Leiklistarvefnum. Nánari upplýsingar um sýninguna og sýningartíma eru á vef Leikfélags Kópavogs,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert