Author: lensherra

Skemmtilegar, sorglegar og fyndnar kvennasögur

Vertu svona kona (úr hugarsmiðju Margaret Atwood, Guðfinnu Gunnarsdóttur og leikhópsins) Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Elín Gunnlaugsdóttir skrifar Allir hafa sína sögu að segja, sérhver kona hefur sína sögu að segja. Þetta er útgangspunktur leikverksins Vertu svona kona sem Leikfélag Selfoss frumsýndi síðastliðinn föstudag. Leikverkið er byggt á textum eftir Margaret Atwood, Guðfinnu Gunnarsdóttur og leikhópsins. Í verkinu er raðað saman textum um konuna, sögu hennar, sögu margra kvenna. Einnig er velt upp hugtökum eins og ást og sýndar mismunandi myndir hennar sem stundum hverfast upp í andstæðu sína. Eins og fyrr segir er verkið byggt í kringum texta kanadíska rithöfundarins...

Sjá meira

Leiklistarskólinn í Landanum

Landinn, þáttur á RUV um lífið í landinu, fer um víða og hittir fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Í næsta þætti, sunnudaginn 5. nóvember, verður m.a. sýnt frá heimsókn í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga sem starfræktur var í Reykjaskóla í Hrútafirði í júní s.l. Þátturinn hefst kl. 19.45.  Ekki missa af þessu! Hér má sjá kynningu á þættinum....

Sjá meira

Vertu svona kona

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Vertu svona kona í leikstjórn Guðfinnu Gunnarsdóttur þann 3. nóvember í Litla leikhúsinu við Sigtún. Sýningin markar upphaf 60 ára afmælisárs Leikfélagsins sem stofnað var 9. janúar 1958. Sýningin er sameiginleg sköpun leikstjórans, leikhópsins og hins skapandi teymis. Öll tónlist og hljóðmynd er í höndum Kristjönu Stefánsdóttur, leikmyndahönnuður er María Marko og um ljósahönnun sér Benedikt Axelsson. Viðfangsefni verksins er konan í sögunni og sagan í konunni. Hvað þýðir það að vera kona? Verkið snertir á hinum ýmsu hliðum konunnar; stelpunni, ástinni, vináttunni, kröfunum, þörfunum, ævintýrunum, ellinni og dauðanum. Það fléttar saman sögur úr bókinni Góð...

Sjá meira

Trúðboð fyrir fullorðna

Leikfélag Akureyrar býður uppá trúðanámskeið fyrir fullorðna án endurgjalds helgina 11. og 12. nóvember. Námskeiðið ber titilinn Trúðboð og er byrjendanámskeið í trúðatækni fyrir alla sem hafa náð 18 ára aldri. Markmið námskeiðsins er að hver og einn þátttakandi nái að “fæða” sinn trúð og kynnast honum betur. Trúðurinn hefur alltaf kærleikann í fyrirrúmi. Hann segir alltaf satt og gerir allt út frá einlægni og opnu hjarta. Á námskeiðinu verður farið í grunnreglur trúðsins. Þátttakendur munu þróa og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki. Trúðatæknin nýtist bæði í leik og starfi – ekki bara leikurum heldur getur...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert