Leikfélag Akureyrar býður uppá trúðanámskeið fyrir fullorðna án endurgjalds helgina 11. og 12. nóvember. Námskeiðið ber titilinn Trúðboð og er byrjendanámskeið í trúðatækni fyrir alla sem hafa náð 18 ára aldri. Markmið námskeiðsins er að hver og einn þátttakandi nái að “fæða” sinn trúð og kynnast honum betur.

Trúðurinn hefur alltaf kærleikann í fyrirrúmi. Hann segir alltaf satt og gerir allt út frá einlægni og opnu hjarta. Á námskeiðinu verður farið í grunnreglur trúðsins. Þátttakendur munu þróa og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki.

Trúðatæknin nýtist bæði í leik og starfi – ekki bara leikurum heldur getur hún auðveldlega nýst þeim sem vinna í miklum samskiptum við aðra, t.d. með börnum, ungu fólki og fólki í umönnunarstörfum. Þessi tækni er líka frábært tæki til að stíga út fyrir þægindaramman, æfa sig í að koma fram og efla sjálfstraust.“

Leiðbeinandi er Benedikt Karl Gröndal sem er Akureyringum að góðu kunnur fyrir hlutverk sín í Pílu Pínu, Þetta er Grín án djóks og Helga magra hjá LA svo fátt eitt sé nefnt. Benedikt Karl mun stíga aftur á svið Samkomuhússins næsta vor í Sjeikspír eins og hann leggur sig.

Trúðanámskeiðið er án endurgjalds og er hluti af Borgarasviði LA 2017-2018. Leikfélag Akureyrar vill með Borgarasviðinu gefa borgurum Akureyrar tækifæri til að upplifa leikhúsið sem rými þar sem fólk hittist, hefur samskipti og tengist skapandi,þvert á aldur, kyn og félagslegan bakgrunn.

Trúðanámskeiðið er daganna 11. nóvember frá 13:00 til 18:00 og 12. nóvember frá 11:00 til 16.00 í Samkomuhúsinu.

Skráning á námskeiðið er hér.

Vinsamlegast athugið að námskeiðið takmarkast við 10 einstaklinga.