Ævintýrið um Augastein
Jólaævintýrið um Augastein mætir aftur á fjalirnar í Tjarnarbíói á aðventunni en sýningin hefur slegið í gegn 15 ár í röð og á orðið frábæran aðdáendahóp. Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist leikurinn. Ná jólasveinarnir að bjarga Augasteini úr klóm Grýlu og jólakattarins áður en jólin ganga í garð?...
Sjá meira


