Jólaævintýrið um Augastein mætir aftur á fjalirnar í Tjarnarbíói á aðventunni en sýningin hefur slegið í gegn 15 ár í röð og á orðið frábæran aðdáendahóp.

Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist leikurinn. Ná jólasveinarnir að bjarga Augasteini úr klóm Grýlu og jólakattarins áður en jólin ganga í garð?

Bókin um Augastein hefur ekki verið fáanleg um árabil en var nýverið gefin út á ný.

Það er Felix Bergsson sem leikur öll hlutverkin í Ævintýrinu um Augastein.  Brúður og leikmynd eru eftir Helgu Arnalds, lýsingu hannaði Jóhann Bjarni Pálmason og tónlistin var útsett af Hróðmari Inga Sigurbjörnssyni fyrir Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar.  Hljóðmynd er verk Sveins Kjartanssonar.  Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.

Miðasala hér.