Leikhópurinn Lotta frumsýnir Gosa
Tólfta sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með glænýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar hefur hópurinn ákveðið að kynnast betur spýtustráknum Gosa og ber nýjasta leikritið nafn hans. Sagan um Gosa gerist inni í Ævintýraskóginum en eins og Lottu er von og visa blandast fleiri þekkt ævintýri inn í verkið. Heyrst hefur að það beri okkur inn í háan turn þar sem við hittum skemmtilega stelpu með afskaplega langa fléttu og að á öðrum stað í Ævintýraskóginum verðum við vitni að því þegar þrjár óskir valda miklum vandræðagangi. Fleira skal ekki...
Sjá meira


