Author: lensherra

Leiklistarskóli BÍL 2018

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði, sum fyrir byrjendur en önnur sem gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Karl Ágúst Úlfsson mun leiða áhugasama inn í töfrandi heim leikritunar og er námskeiðið ætlað jafnt byrjendum sem lengra komnum. Ágústa Skúladóttir skipuleggur og stýrir skemmtilegu og krefjandi trúðanámskeiði fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðum í leiklist. Kennslan verður í samvinnu við Gunnar Björn Guðmundsson. Rúnar Guðbrandsson stýrir masterclass námskeiði í leikstjórn og byggir þar ofan á góðan grunn. Að lokum er okkur sérstök ánægja að bjóða í fyrsta sinn í sumarskóla Bandalagsins upp á námskeið í hönnun og aðferðum við leikmynda- og búningagerð. Þar bjóðum við velkomna Evu Björgu Harðardóttur sem kennir hjá okkur í fyrsta sinn en námskeiðið hentar öllum þeim sem hafa áhuga á því sem gerist bak við tjöldin í leikhúsinu. Bæklingur skólans starfsárið 2018 er hér á PDF formi: LeiklistarskoliBIL2018 Kveðja frá skólanefnd: Kæra leiklistaráhugafólk! Í sumar er komið að tuttugasta og öðru starfsári leiklistarskólans okkar. Það er alltaf jafn gaman að skipuleggja þetta metnaðarfulla starf og fá svo að fylgjast með nemendum meðtaka, þora, skapa, vaxa, eflast og njóta! Að þessu sinni verða fjögur fjölbreytt námskeið í boði, sum fyrir byrjendur en önnur sem gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Karl Ágúst Úlfsson mun leiða...

Sjá meira

Sjóræningjaprinsessan á Húsavík

Laugardaginn 3. mars sl. var 118 ára afmæli Leikfélags Húsavíkur og þann dag var frumsýning á  Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Þetta er fjörugt verk með ævintýrablæ þar sem fyrir koma sjóræningjar, mannætur og auðvitað falinn fjársjóður. Tuttugu og sex leikarar á öllum aldri koma fyrir í sýningunni sem býður upp á góða skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Tónlistin í verkinu er eftir Ármann Guðmundsson og Guðmund Svafarsson en söngtextar eftir Ármann og Sævar Sigurgeirsson. Því mætti segja að nokkur Hálfvitabragur sé á tónlistinni. Leikstjóri er hin góðkunna María Sigurðardóttir sem Leikfélag Húsavíkur hefur átt afar farsælt...

Sjá meira

Hans Blær í Tjarnarbíói

Óskabörn ógæfunnar frumsýna leikritið Hans Blær í Tjarnarbíói laugardaginn 10. mars. Hafið þið nokkurn tíma spurt ykkur hvaða eiginleika manneskja þyrfti að hafa til þess að þið gætuð verið þess fullviss að viðkomandi væri að öllu leyti, innra sem ytra, óferjandi skíthæll og viðundur?  Og ef ekki – Hvers vegna í ósköpunum ekki? Hans Blær Viggósbur er gjálífiströll með uppleysta sjálfsmynd, ofvirka tískuvitund og egó í hjartastað. Hán er glundroðamaskína í fjölkynja líkama sem lifir fyrir það eitt að storka heiminum og trekkja upp hina viðkvæmu. Allt frá því hán komst fyrst í tæri við hamstrahjól fjöl- og félagsmiðlunar...

Sjá meira

Frábær en vantar meiri sultu

Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard Þýðandi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson / Lög og söngtextar Valgeir Skagfjörð Leikstjórn Örn Alexandersson Fá leikfélög á landinu hafa verið jafn dugleg við að sinna æskulýðsstörfum og Leikfélag Kópavogs. Vinna með börnum og unglingum hefur jafnan skipað veglegan sess þar á bæ. Þannig hefur félagið alið upp kynslóð eftir kynslóð af leikurum og leikhúsáhugafólki. Sýningin Fróði og allir hinir grislingarnir, sem frumsýnd var 3. mars síðastliðinn, er dæmi um þetta. Hér er á ferðinni barna- og unglingasýning með tiltölulega breiða skírskotun, full af galsa, húmor og söng. Það var eftirvænting í loftinu...

Sjá meira

Marta Nordal er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar

Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Mörtu Nordal í starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar. Marta snýr því aftur í Samkomuhúsið, en hún lék fyrir LA á árum áður. Auk þess hefur hún verið leikkona hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu, en undanfarin ár hefur hún alfarið einbeitt sér að leikstjórn. Árið 2010 stofnaði Marta, ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikhópinn Aldrei óstelandi og hefur hópurinn framleitt fimm sýningar sem hafa vakið mikla athygli; Fjalla-Eyvind, Sjöundá, Lúkas, Ofsa og Natan. Auk þess hefur Marta leikstýrt fjölda verka fyrir útvarp. Um þessar mundir leikstýrir hún söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur síðar í mánuðinum í Borgarleikhúsinu. Marta...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur

Nýtt og áhugavert