Author: lensherra

Dagskrá skólans að taka á sig mynd

Nú er orðið ljóst hvaða námskeið verða í boði í Leiklistarskóla BÍL í sumar. Í boði verða eftirtalin námskeið: Leiklist I – Kennari Aðalbjörg Árnadóttir, Leikritun II – kennari Árni Kristjánsson og Sérnámskeið fyrir leikara, kennari Rúnar Guðbrandsson.  Skólinn sem haldinn verður á Reykjum í Hrútafirði eins og undanfarin ár, stendur frá 8. – 16 júní.  Nánari upplýsingar um námskeiðin koma á næstu dögum. Opnað verður fyrir umsóknir 15. mars...

Sjá meira

Sýning Rauða skáldahússins

Á alþjóðlegum degi kvenna þann 8. mars fer fram 8. sýning Rauða skáldahússins, sem verður eingöngu skipuð konum. Rauða skáldahúsið heldur uppi ljóðaveislum í leikhúsanda sem fara fram í Iðnó fjórum sinnum á ári þar sem ljóðalestri er blandað saman við leikhús, kabarett, börlesk, sirkús og tónlist. Iðnó er breytt í athvarf listamanna sem ættu vel heima á 3. áratug síðustu aldar. Gestir geta verslað einkalestra með skáldum kvöldsins, látið spá fyrir sér, dansað, drukkið og blandað geði við hvort annað. Rauða skáldahúsið hefur fest sig í sessi sem reglulegur menningarviðburður sem hefur hýst skáld jafn ólík og Sjón,...

Sjá meira

Skapandi aðferðir í leiklist

Leikfélagið Hugleikur stendur næsta rúma mánuðinn fyrir námskeiðum fyrir leikara og leikstjóra sem vilja kynna sér skapandi aðferðir (devised) við vinnslu leikverka fyrir svið. Námskeiðin henta jafnt byrjendum sem lengra komnum og standa opin jafnt félagsmönnum sem öðrum. Nánar um námskeiðin: 1. Leiklistarnámskeið, um 17-20 tímar. Lágmarksfjöldi þátttakenda: 12 Leikarinn sem skapandi listamaður. Gegnum ýmis konar æfingar og spunavinnu verður leitast við að hjálpa leikaranum að skapa og forma sitt eigið efni, bæði sem einstaklingur og hluti af hóp. Hefst 27. febrúar. 2. Leikstjóranámskeið, um 17-20 tímar. Lágmarksfjöldi þátttakenda: 6 Leikstjórinn sem höfundur. Kynntar verða „skapandi aðferðir“ (Devising methods),...

Sjá meira

Fullkomið brúðkaup í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms setur nú í fyrsta sinn á fjalirnar hið sívinsæla leikrit Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi verksins er Örn Árnason og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Frumsýnt verður 22. febrúar 2019 kl. 20:30 í félagsheimilinu Lyngbrekku. Fullkomið brúðkaup er bráðskemmtilegt og rómantískt gamanleikrit sem fjallar um ungt par sem er að fara að gifta sig. Ýmislegt óvænt kemur uppá á sjálfan brúðkaupsdaginn sem veldur misskilningi og mikilli geðshræringu. Ný ástarsambönd verða til á meðan önnur fara forgörðum. En þrátt fyrir allt ruglið er allt er gert til þess að láta daginn ganga upp, svo þetta verði...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert