Author: lensherra

Kynning á kennaranámi við Listaháskólann

Í Listaháskóli Íslands getur fólk lagt stund á kennaranám og útskrifast með kennsluréttindi á leik- grunn-, og framhaldsskólastigi. Kynning á kennaranámi LHÍ fer fram fimmtudaginn 4. apríl í stofu 211 á annari hæð. Um kennaranám í LHÍ: Listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á fimm námsleiðir á meistarastigi. Meistaranám í listkennslufræðum- Fyrir fólk með bakkalárgráðu í listgrein Meistaranám í kennslufræðum- NÝ NÁMSLEIÐ, fyrir fólk með bakkalárgráðu í öðru en listgreinum. Meistaranám í listkennslu með aðfararnámi- Fyrir fólk sem hefur lokið amk 120 einingum á bakkalárstigi. Diplóma í leikskólakennslufræðum- 30 eininga viðbótarnám til leikskólakennsluréttinda fyrir þau sem er með listkennsluréttindi. Diplóma...

Sjá meira

Heilmikið sokkasokk

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir „Heilmikið sokka sokk“  eftir Katrínu Sif Ingvarsdóttur og Ösp Eldjárn miðvikudaginn 3. apríl. Öll tónlist í verkinu er einnig eftir Ösp Eldjárn og eiga þær stöllur saman textana. Sýningin gerist í „Landi hina stöku sokka“ þar sem sokkar eiga það til að hverfa úr þvottavélum heimilanna og enda stakir. Fylgst er með sokkunum Jamma og Sillu og hvernig þeim reiðir af eftir að þau enda þarna saman og þurfa að takast á við hluti eins og að vera flokkaðir gegn sínum vilja, einræðisherra með flokkunaráráttu og sokka sem hafa sætt sig við ástandið. Þessi sýning er fyrir fólk...

Sjá meira

Aðalfundur BÍL á Húsavík 4.-5 maí

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2019 verður haldinn á Húsavík dagana 4.-5. maí nk. Aðalfundurinn verður settur kl. 9.00 laugardaginn 4. maí og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 5. maí. Dagskrá aðalfundar er að finna í lögum Bandalagsins. Matur, gisting og fundur verður á Hótel Húsavík. Verð miðað við 1 mann í 2ja manna herbergi 3. – 5. maí er 31.500 kr. Innifalið er: Gisting í 2 nætur, kvöldmatur föstudag, morgunverðarhlaðborð, hádegismatur og kaffiveitingar á laugardag og hátíðarkvöldverður. Hádegismatur og kaffiveitingar sunnudag. Heimamenn verða með dagskrá fyrir okkur á föstudagskvöld þar sem þau m.a. sýna senur úr BarPar eftir Jim...

Sjá meira

Nanna systir á Ströndum

Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við uppsetningu á upp gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson, undir styrkri leikstjórn Skúla Gautasonar. Frumsýnt verður sunnudaginn 7. apríl. Leikarar í leikritinu eru tíu, fimm konur og fimm karlar. Sumir leikararnir eru gamalreyndar kanónur og aðrir eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviði með Leikfélagi Hólmavíkur en þau eru öll jöfn í þessari stórskemmtilegu uppsetningu. Sögusvið Nönnu systur er samkomuhús í íslensku sjávarþorpi árið 1996. Þar stendur til að setja upp söngleik um Fjalla-Eyvind. Óvæntar heimsóknir og uppákomur setja þó strik í reikninginn. Það gengur á...

Sjá meira

Rock of Ages á Skaganum

Nemendafélag Fjölbrautaskólans á Akranesi sýnir um þessar mundir söngleikinn Rock of Ages í samstarfi við Tónlistarskólann á Akranesi. Rock Of Ages er kraftmikill Broadway söngleikur eftir Chris D’Arienzo. Sýningin býður upp á allan tilfinningarússíbanan og er stanslaus skemmtun sem enginn má missa af! Rock Of Ages hefur bæði verið kvikmynduð og sýnd í leikhúsum út um allann heim og ratar nú beint inn í Bíóhöllina á Akranesi. Söngleikurinn Rock Of Ages gerist í Los Angeles um miðjan níunda áratug síðustu aldar, þar sem aðal atriðið var að vera með sæmilegt magn af hári, góðan drykk í hönd og stóra...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert