Samtal við leikhús – Jónsmessunæturdraumur
Samtal við leikhús er málfundaröð til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur þar sem atvinnuleikhúsfólk og fræðimenn koma saman og ræða uppsetningar á leikverkum sem eru í sýningu hjá leikhúsunum. Viðburðurinn er að þessu sinni tileinkaður Jónsmessunæturdraumi eftir breska leikskáldið William Shakespeare sem nú er verið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Hvaða erindi á verkið við okkur í dag? Hvernig nálgast leikstjóri uppsetningu verksins? Hvernig vinnur þýðandinn úr textanum? Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í Veröld þann 8. apríl. Í pallborði verða Hilmar Jónsson leikstjóri, Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona, Eva Signý Berger leikmyndahöfundur og Þórarinn Eldjárn þýðandi. Ingibjörg Þórisdóttir dramatúrgur og...
Sjá meira


