Ársritið 2017-18 er komið út
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2017–2018 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar...
Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn
Þann 12. október frumsýnir Leikfélag Selfoss fjölskylduverkið „Á vit ævintýranna“ í leikstjórn Ágústu Skúladóttur í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er sameiginleg sköpun leikhópsins og leikstjórans en er byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og stóra Kláus...
Ljóðahugleiðsla um frið og kærleika
Fimmtudaginn 11. október, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri...
Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti
Kómedíuleikhúsið frumsýnir leikritið Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti 4. október komandi. Hér er á ferð einstök sýning um einn ástsælasta listamann þjóðarinnar. Leikurinn fjallar fyrst og fremst um ár Sigvalda í Ármúla í Ísafjarðardjúpi hvar hann starfaði sem læknir í...
Ævintýri í uppsiglingu hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss er enn í 60 ára afmælisgírnum og er því í óða önn ađ setja upp metnaðarfulla barna- og fjölskyldusýningu sem stefnt er að frumsýna þann 12. október næstkomandi. Á síđustu vikum hefur mikiđ gengið á enda andi...
Hörður verður framkvæmdastjóri
Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ráðið Hörð Sigurðarson sem framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2019. Hörður er Bandalagsfólki að góðu kunnur. Hann sat í varastjórn BÍL á árunum 1996-1998 og í aðalstjórn 1998-2006 og 2008-2010. Hann starfaði einnig í nefnd...
Svartlyng, frumsýning 21. september
Svartlyng, sótsvartur gamanleikur eftir Guðmund Brynjólfsson í uppsetningu leikhópsins Gral, verður frumsýndur í Tjarnarbíói föstudaginn 21. september kl. 20.00. Í Lagadeild Háskóla Íslands er þrískipting valdins útskýrð með þessum hætti: „Svartlyng-ættin á dómstólana, Svartlyng-ættin á stjórnarráðið og Svartlyng-ættin á löggjafarþingið.“ Hinu er...
Leikið í Litháen
Leiklistarhátíð NEATA fór fram í Anyksciai í Litháen fyrr í mánuðinum og var sýning Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn, framlag Íslands. Sýningin hlaut frábærar viðtökur og nú þegar er leikfélagið með opin boð á leiklistarhátíðar í Rússlandi og Litháen. NEATA...
Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra
Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 100% starf frá 1. janúar 2019. Framkvæmdastjóri vinnur í umboði stjórnar Bandalagsins og eru verkefni hans m.a.: Daglegur rekstur skrifstofu og verslunar með áherslu á þjónustu við aðildarfélög og aðra sem eftir...
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra fyrir haustverkefni félagsins sem verður barnaverkið Glanni glæpur í Latabæ eftir Magnús Scheving. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. september og vinna í u.þ.b. 8 vikur. Umsóknir með ferilskrá og ósk um frekari...


