Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn var að Melum í Hörgársveit. Guðfinna Gunnarsdóttir var kjörin formaður en Þorgeir Tryggvason sem hafði setið sem formaður í fjögur kjörtímabil gaf ekki kost á sér áfram. Í aðalstjórn voru einnig kjörin Gísli Björn Heimisson og Ólöf Þórðardóttir. Áfram sitja Þráinn Sigvaldason og Bernharð Arnarson.