Fimmtánda júlí sl. var frumsýndur í Sögusetrinu á Hvolsvelli nýr frumsaminn einleikur um Hallgerði langbrók. Leikurinn heitir Gestaboð Hallgerðar og er eftir Hlín Agnarsdóttir sem jafnframt er leikstjóri. Með hlutverk Hallgerðar fer Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og Ómar Smári Jónsson leikur vinnumann  hennar, Melkó. Leikurinn verður sýndur í Söguskálanum í Sögusetrinu á Hvolsvelli eins lengi og aðsókn og áhugi leyfir.

Verkið gerist í nútímanum. Hallgerður er listakona og býr að  Hlíðarenda í Fljótshlíð og svo skemmtilega vill til að ævi hennar og lífshlaup er nánast spegilmynd af ævi Hallgerðar langbrókar Höskuldsdóttur sem þar bjó fyrir rúmum eitt þúsund árum.

Gunnar eiginmaður hennar (sá þriðji í röðinni – fyrri eiginmenn hennar tveir eru fallnir í valinn) rekur menningartengda ferðaþjónustu á bæum og hefur boðið gestum í mat að konu  sinni forspurðri – sjálfur er hann að heiman. Enginn matur er í bænum og sendir Hallgerður vinnumann sinn, Melkó, að afla vista. Á beðan gestirnir bíða eftir veitingunum skemmtir Hallgerður þeim með ævintýralegri frásögn af einkar skrautlegri ævi sinni.