Author: lensherra

Brúðkaupið heldur áfram

Seinni hluti leikárs Leikfélags Akureyrar hefur verið stokkaður upp og sýningartími Fullkomins brúðkaups framlengdur vegna fjölda áskorana. Frumsýningu Maríubjöllunnar verður flýtt og nýtt leikrými verður tekið í notkun en frumsýningu Litlu hryllingsbúðarinnar verður seinkað.   Vegna gríðarlegrar eftirspurnar eftir miðum á Fullkomið brúðkaup og fjölda áskorana hefur seinni hluti leikársins 2005-2006 hjá LA verið endurskipulagður og stokkaður upp. Ákveðið hefur verið að halda áfram sýningum á Fullkomnu brúðkaupi í janúar og febrúar. Til að gera þessa breytingu möglega þarf að fresta frumsýning á söngleiknum Litla hryllingsbúðin en hún verður frumsýnd þann 23. mars. Frumsýningu á Maríubjöllunni er á hinn bóginn flýtt til 17. febrúar en sú sýning verður frumsýnd í nýju leikrými sem LA tekur í notkun og getur því gengið samhliða sýningum á Fullkomnu brúðkaupi.   Sýningum á Fullkomnu brúðkaupi átti að ljúka um áramótin enda sýnir LA nú eftir nýju sýningarfyrirkomulagi, þar sem hvert verk er sýnt þétt í tiltekinn tíma en aukasýningum bætt við eftir því sem þörf er á. Í tilfelli Fullkomins brúðkaups hefur þetta þó ekki nægt, því troðfullt hefur verið á allar sýningar og aukasýningar sem bætt hefur verið við hafa allar selst upp jafnóðum. Sýningin hefur verið sýnd allt að fimm sinnum í viku hverri en ekkert lát er á aðsókn. Til að mæta óskum áhorfenda er því brugðist við með því að hliðra til dagskrá eftir áramót sem gerir leikhúsinu kleift...

Sjá meira

Síðustu sýningar fyrir jólin

Leikhúsin gera hlé á sýningum síðustu dagana fyrir jól en leikhúsunnendur geta ennþá fundið eitt og annað áhugavert á fjölunum. Hugleikur sýnir Jólaævintýrið í Tjarnarbíói á laugardag og sunnudag og Leikfélag Hafnarfjarðar verður með aukasýningu á Hinni endanlegu hamingju í gamla Lækjarskóla á föstudginn. Leikfélag Akureyrar sýnir þrjár sýningar á Fullkomnu brúðkaupi um næstu helgi, í Þjóðleikhúsinu er Leitin að jólunum sýnt á næstum hverjum degi til 22. desember og þar verður einnig Edit Piaf-dagskrá mánudaginn 19. Í Borgarleikhúsinu er sýning Nemendaleikhússins á Þrem systrum sýnd tvisvar um helgina og í Iðnó sýnir Hilmir Snær Ég er mín eigin kona þrisvar frá fimmtudegi til sunnudags. Leikhópurinn Á senunni sýnir Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói fimm sinnum frá miðvikudegi til sunnudags og Möguleikhúsið ferðast þessa dagana milli leik- og grunnskóla með hina gamalkunnu sýningu Smiður jólasveinanna. Stoppleikhópurinn ferðast líka um þessar mundir milli skóla með jólaleikritið Síðasta stráið. Leiklistarvefurinn hefur ekki upplýsingar um fleiri leiksýningar til jóla en ef þú, lesandi góður, veist meira, endilega sendu okkur þá línu á info@leiklist.is. Heimildir: viðburðadagatalið á leiklist.is og Mbl.Efri myndin er af Freysteini, hinum framliðna guðsmanni úr Hinni endanlegu hamingju Leikfélags Hafnarfjarðar en sú neðri úr Jóladagatali...

Sjá meira

Sex í sveit, aukasýning

Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs á Sex í sveit á Iðavöllum. Sýningin verður á föstudagskvöld klukkan 20 og er þetta allra síðasta sýning!   Sex í sveit hefur fengið frábærar móttökur og uppselt hefur verið á flestar sýningar á Iðavöllum. Þegar hafa á níunda hundrað manns séð verkið sem er bráðfyndinn farsi eftir franska leikskáldið Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.   Sexmenningana í uppfærslu Leikfélags Fljótsdalshéraðs leika þau Garðar Hallfreðsson, Jódís Skúladóttir, Friðjón Magnússon, Anna Björk Hjaltadóttir, Sigurlaug Gunnarsdóttir og Jón Gunnar...

Sjá meira

Halldór í Hollywood

Sýningum er að ljúka á Halldóri í Hollywood. Allra síðasta sýning verður á laugardagskvöldið 10. desember. Það er Atli Rafn Sigurðarson sem fer með hlutverk Nóbelskáldsins, um tónlistarstjórn sér Árni Heiðar Karlsson en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.   Halldór í Hollywood eftir Ólaf Hauk Símonarson hefur hlotið góðar viðtökur leikhúsgesta. Sýningin er sú fyrsta sem sýnd er eftir breyttu sýningafyrirkomulagi í Þjóðleikhúsinu, það er þéttar en í skemmri tíma. Sem fyrr segir, verður allra síðasta sýning á laugardagskvöldið. Leikritið byggir á Ameríkuárum Halldórs Kiljans Laxness 1927 – 1929 þegar Halldór var ungur ofurhugi. Í Hollywood heillaðist hann af kvikmyndaiðnaðinum og ætlaði sér að slá í gegn sem handritshöfundur kvikmynda. En það var ekki auðvelt að sigra Hollywood þá frekar en nú og hræsnin í bandarísku samfélagi átti ekki upp á pallborðið hjá skáldinu. Hann varð fljótt gagnrýninn á efnalega mismunun og þjóðfélagslegt ranglæti. Í leikriti Ólafs Hauks sjáum við hvernig dvöl Halldórs í Ameríku varð fyrst og fremst til þess að hann fann Ísland á ný og gerðist íslenskur rithöfundur. Við sögu koma ýmsir vinir og velgjörðarmenn Halldórs frá Ameríkuárunum, nokkrar af skærustu stjörnum Hollywood á þessum tíma eins og Charlie Chaplin og Greta Garbo og síðast en ekki síst allar konurnar í lífi hans. Það er sem áður segir Atli Rafn Sigurðarson sem fer með hlutverk Nóbelskáldsins, um tónlistarstjórn sér Árni Heiðar Karlsson en leikstjóri er Ágústa...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert