ImageEldhús eftir máli – Hversdaglegar hryllingssögur eftir Völu Þórsdóttur sem byggir á nokkrum smásögum Svövu Jakobsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 29. desember nk. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.

ImageSvava Jakobsdóttir hafði með skáldsögum sínum, smásögum og leikritum mikil áhrif á íslenskt menningarlíf og samfélag á ofanverðri tuttugustu öld, en með verkum sínum miðlaði hún meðal annars skarpri sýn á stöðu konunnar í samfélaginu. Með sýningunni Eldhús eftir máli hyggst Þjóðleikhúsið heiðra minningu Svövu. Hún hefði orðið 75 ára í ár, en lést á síðasta ári.

Þjóðeikhúsið réð Völu Þórsdóttur til að skrifa leikverk sem byggir á nokkrum af þekktustu smásögum Svövu og titillinn vísar til einnar þeirra. Einnig liggja smásögurnar Gefið hvort öðru, Saga handa börnum, Krabbadýr, brúðkaup, andlát og Veisla undir grjótvegg leikverkinu til grundvallar. Ekki er um eiginlega leikgerð að ræða, heldur er leikverkið innblásið af sagnaheimi Svövu Jakobsdóttur. Verkið ber undirtitilinn Hversdagslegar hryllingssögur og mun sýningin meðal annars mótast af frásagnarmáta sem Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir, leikstjóri verksins, hafa þróað í sameiningu í ýmsum uppfærslum sem þær hafa unnið að hér á landi og í Bretlandi.
Vala Þórsdóttir hefur unnið jöfnum höndum sem leikkona og leikskáld. Hún lauk námi í leiklist við Bretton Hall listaháskólann í Leeds árið 1995 og hefur sótt ýmis námskeið í leiklist og leikritun, auk þess sem hún lærði kvikmyndahandritsgerð hjá North By North West í Danmörku. Vala hefur meðal annars skrifað Lemon Sisters, Háaloft og Veröldin er vasaklútur í samvinnu við Icelandic Take Away Theatre, Hafrúnu fyrir Möguleikhúsið og Má bjóða þér eitthvað annað fyrir Listahátíð í Reykjavík. Hún hefur einnig skrifað barnaefni fyrir sjónvarp og kvikmyndahandrit. Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur er fyrsta leikrit Völu í Þjóðleikhúsinu.

Leikarar í sýningunni eru Aino Freyja Järvelä, sem leikur nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu, Kjartan Guðjónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, María Pálsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Þórunn Lárusdóttir.
Björn Thorarensen kemur nú til starfa við Þjóðleikhúsið í fyrsta sinn sem höfundur tónlistar. Lýsingu hannar Hörður Ágústsson, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir, höfundur leikmyndar er Stígur Steinþórsson og leikstjóri er sem fyrr segir Ágústa Skúladóttir.

Frumsýnt verður á Smíðaverkstæðinu 29. desember 2005.