Túskildingsóperan frumsýnd annan í jólum
Jólaverkefni Þjóðleikhússins að þessu sinni er Túskildingsóperan eftir Bertolt Brecht og Kurt Weill. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Þegar sómakærir Íslendingar eru rétt búnir að kyngja jólaöndinni sprettur fram hinn forboðni ávöxtur leikhúsjöfranna Bertolts Brecht og Kurts Weill. Þetta óperuútfrymi gerði allt vitlaust þegar það var frumsýnt í Berlín 1928. Túskildingsóperan synti á móti straumi og stefnum, ristilspeglaði borgaraleg gildi og var annaðhvort lofsungin eða úthrópuð sem argasta klám. Áhorfendur kölluðu þó ekki allt ömmu sína í Weimarlýðveldinu, Sódómu millistríðsáranna. Áður en verkið varð eins árs reyndist það mesti "hittari" þýskrar leiklistarsögu, var leikið tíu sinnum á dag í fimmtíu borgum víðsvegar í Evrópu. Sagan sem byggir á betlaraóperu Johns Gay frá 1728 fjallar um skrautlegan lýð, broddborgara og bófa. Þar segir af ólöglegum yfirtökum á eignum og tilfinningum. Makki hnífur spyr: Hver er munurinn á að ræna banka og að taka yfir banka? Missið ekki af þessu sveitta sígilda Weimarpönki, breiðu bökunum, hórunum og þjófunum. Alls taka sautján leikarar þátt í sýningunni. Í hlutverkum herra og frú Peachum eru þau Egill Ólafsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Ólafur Egill Egilsson fer með hlutverk Makka hnífs og Atli Rafn Sigurðarson er Brown lögregluforingi. Halla Vilhjálmsdóttir leikur Polly, Katla Margrét Þorgeirsdóttir Jenny og Edda Björg Eyjólfsdóttir Lucy. Aðrir leikarar í sýningunni eru Baldur Trausti Hreinsson, Bjartmar Þórðarson, Eline McKay, Gísli Pétur Hinriksson, Hjálmar Hjálmarsson, Margrét Kaaber, Ólafur Steinn Ingunnarson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Selma...
Sjá meira


