Maríubjallan frumsýnd hjá LA
Fimmtudaginn 16. febrúar verður leikritið Maríubjallan frumsýnt í Rýminu, nýju leikhúsi Leikfélags Akureyrar. Maríubjallan er kraftmikið og magnað nútímaverk eftir Vassily Sigarev. Leikritið er sýnt í Rýminu sem er nýtt leikhús Leikfélags Akureyrar sem kemur til viðbótar við starfsemi leikhússins í Samkomuhúsinu. Rýmið, sem er til húsa að Hafnarstræti 73, er svartur kassi og þar er hægt að staðsetja uppsetningar á ólíka vegu. Dima er 19 ára. Hann býr í blokk við hliðina á kirkjugarðinum, þaðan sem hann stelur legsteinum og selur. Á morgun hefur hann herþjónustu en í kvöld heldur hann vinum sínum kveðjupartý. Þangað koma vinir hans Slavik og Arkasha auk stúlknanna Leru og Júlkua. Á einu kvöldi fáum við magnaða innsýn í líf persónanna, kynnumst sorgum þeirra og þrám. Í ömurlegum aðstæðum er að finna allt litróf mannlegra tilfinninga og hver um sig hefur fundið sína leið til að lifa af. Vassily Sigarev er talinn eitt fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar í Evrópu og hefur hlotið fjölda verðlauna á síðastliðnum misserum. Meðal annarra verka hans eru Plasticine og Svört mjólk sem bæði voru frumsýnd í Royal Court leikhúsinu í London. Það síðastnefnda var einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir skömmu. Árni Bergmann þýddi verkið úr rússnesku en Jón Páll Eyjólfsson er leikstjóri sýningarinnar. Hann var tilnefndur til menningarverðlauna DV í fyrra fyrir leikstjórn og gagnrýnandi Morgunblaðsins útnefndi hann „mann ársins í íslensku leikhúsi”. Maríubjallan er önnur uppsetning...
Sjá meira


