Author: lensherra

Þetta mánaðarlega í Þjóðleikhúskjallaranum

Hugleikur verður með febrúarútgáfu sína af Þessu mánaðarlega í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikudagskvöldið, 8. febrúar. Í þetta skiptið er dagskráin að mestu á þjóðlegum nótum, í tilefni þorrans, en þjóðararfurinn hefur reyndar lengi verið mikilvægt viðfangsefni félagsins, og skilgreiningin á því bísna víð. Að þessu sinni verða tveir leikþættir fluttir. Bið á þorra eftir Árna Hjartarson og Gegnumtrekkur eftir Unu Mikaelsdóttur og Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Nýstofnaður kór, söngsveitin Hjárómur mun frumflytja kórverkið Heilræði eftir Þorgeir Tryggvason við texta úr Hávamálum. Þá mun Árni Hjartarson flytja meistaraverk Einars Benediktssonar, Hvarf séra Odds frá Miklabæ, í leikrænum búningi með áhrifshljóðum. Síðast en ekki síst mun póst-húsvíska súpergrúppan Rip, Rap og Garfunkel skemmta gestum á sinn einstaka hátt. Eitthvað fyrir alla á þorrahlaðborði Hugleiks 8. febrúar. Dagskráin hefst kl. 21.00. Miðaverð er 1000 kr. Miðapantanir í síma 551 2525 og í pósti á...

Sjá meira

Harold Pinter á Stóra sviði Þjóðleikhússins í vor

Af óviðráðanlegum orsökum getur ekki orðið af sýningu leikstjórans og myndlistarmannsins Christophs Schlingensiefs, Ragnarökum 2010, í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð í vor. Því hefur verið ákveðið að taka til sýningar nýjasta verk Harolds Pinters, Celebration. Undirbúningur fyrir Ragnarök 2010 hefur staðið í um hálft ár, en í síðustu viku tilkynnti Schlingensief leikhúsinu að af samvinnu gæti því miður ekki orðið,  þar sem hann kysi fremur að einbeita sér að verkefnum á sviði myndlistar að svo stöddu. Það er Þjóðleikhúsinu mikið ánægjuefni að geta tilkynnt áhorfendum sínum að í stað sýningar Schlingensiefs hefur verið ákveðið að setja á svið nýjasta leikrit Harolds Pinters, Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum árið 2005. Verkið heitir á frummálinu Celebration og hlaut þá umsögn gagnrýnenda þegar það var frumflutt í London að það væri fyndnasta og aðgengilegasta verk þessa frábæra leikskálds í langan...

Sjá meira

Tíu þúsundasti gesturinn

Leiksýningin Fullkomið brúðkaup hefur notið fádæma vinsælda frá því hún var frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar í lok október. Troðfullt hefur verið á allar sýningar og til að mæta eftirspurn hefur fjölda aukasýninga verið bætt við sem allar hafa selst upp jafn óðum. Nú á laugardag mun tíu þúsundasti gesturinn sjá sýninguna sem er orðin sú næst vinsælasta í sögu leikhússins. Einungis hafa fleiri séð My Fair Lady árið 1983 en hana sáu rúmlega 11.000 manns. Tíu þúsund gestir hafa streymt í Samkomuhúsið að sjá gamanleikritið Fullkomið brúðkaup síðan það var frumsýnt í lok október. Verkið hefur hlotið afar jákvæð viðbrögð áhorfenda og gagnrýnenda. Fullkomið brúðkaup er orðið næstvinsælasta sýning LA frá upphafi. Einungis hafa fleiri séð My Fair Lady árið 1983 en hana sáu rúmlega 11.000 manns. Það kemur því í ljós í febrúar hvort metið verði slegið. Sýningar á Fullkomnu brúðkaupi hafa allar verið troðfullar og sýnt hefur verið allt að fimm sýningum um helgi. Aukasýningum er bætt við eins og þurfa þykir. Þrátt fyrir gott gengi þá mun sýningum á Fullkomnu brúðkaupi ljúka þann 18. febrúar. En sem fyrr hefur verið bætt við aukasýningum til að mæta eftirspurn eftir miðum og því enn hægt að fá miða – en hver er að verða síðastur.  LA tók í fyrra upp nýtt sýningarfyrirkomulag. Þá er fyrirfram skilgreindur sýningartími fyrir hvert verk og svo er það sýnt þétt í þann...

Sjá meira

Margt smátt í Borgarleikhúsinu

Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, verður haldin í Borgarleikhúsinu föstudaginn 5. maí nk. kl. 20:00 í tengslum við aðalfund Bandalagsins sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí. Til að hvetja sem flest aðildarfélög til þátttöku í hátíðinni verður ekki valið inn á hana, aðeins sett 15 mínútna tímamörk á sýningarnar. Tímalengd hátíðarinnar í heild verður 3 klst. með tveimur hléum. Ef það margar umsóknir berast að séð verður að tímaramminn haldi ekki, verða þau félög sem sækja um að koma með flestar sýningar á hátíðina beðin um að draga einhverja af sínum til baka. Þrjár...

Sjá meira

Öskubuska frumsýnd 5. febrúar

Íslenska Óperan frumsýnir sunnudaginn 5. febrúar Öskubusku eftir ítalska tónskáldið Gioacchino Rossini við texta  eftir Jacopo Ferretti. Öskubuska er reglulega á fjölum helstu óperuhúsa víðsvegar um heiminn, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er sett upp hér á landi. Leikstjóri er Paul Suter og hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky. Söguþráður óperunnar byggir á ævintýrinu velþekkta um Öskubusku. Í óperunni er það reyndar vondi stjúpfaðirinn Don Magnifico og hégómlegu dætur hans tvær, Clorinda og Tisbe, sem gera Öskubusku lífið leitt. Það er svo heimspekingurinn Alidoro sem kemur í stað álfkonunnar góðu og sér til þess að Öskubuska komist á dansleikinn í höllinni. Eins og í mörgum góðum óperum eru það dulargervin sem gegna mikilvægu hlutverki í óperunni Öskubusku. Prinsinn Ramiro og þjónninn Dandini hafa skipti á hlutverkum. Stjúpsysturnar Clorinda og Tisbe eru því uppteknar af því að koma sér í mjúkinn hjá þjóninum, sem er dulbúinn sem prinsinn, á meðan Öskubuska og hinn raunverulegi prins, dulbúinn sem þjónn, fella hugi saman. Á dansleiknum í höllinni lætur Öskubuska prinsinn fá annað af tveimur armböndum sínum og segir honum að leita sig uppi og ef hann elski sig enn, þá verði hún hans. Þegar prinsinn finnur Öskubusku kemst upp hver er hinn sanni prins og verða Don Magnifico og dætur hans æf af reiði, þegar hann tilkynnir að Öskubuska sé hans útvalda.  Þau vísa henni á bug þegar hún reynir að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert