Author: lensherra

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir Blessað barnalán

Föstudaginn 7. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri uppfærslunnar er Akureyringurinn Sunna Borg. Sunnu þekkja flestir fyrir störf sín hjá LA, en í gegnum tíðina hefur hún leikið þar hjá félaginu fjölda eftirminnilegra hlutverka, haldið námskeið og leikstýrt. Þetta er í fyrsta sinn er Sunna leikstýrir hjá Leikfélagi Dalvíkur. Föstudaginn 7. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri uppfærslunnar er Akureyringurinn Sunna Borg. Sunnu þekkja flestir fyrir störf sín hjá LA, en í gegnum tíðina hefur hún leikið þar hjá félaginu fjölda eftirminnilegra hlutverka, haldið námskeið og leikstýrt. Þetta er...

Sjá meira

Aukasýningar á Hungri

Ákveðnar hafa verið þrjár aukasýningar á Hungri sem Fimbulvetur ehf setti upp fyrr í vetur. Verkið hefur hlotið mikið umtal og lof og afar vel hefur selst á þær tíu sýningar sem búnar eru og um 1700 manns hafa þegar séð verkið.  Fimbulvetur ehf og Borgarleikhúsið hafa nú ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á verkinu í maí. Þar sem Fimbulvetur varð frá Litla Sviðinu að hverfa í apríl vegna endurupptöku á hinu frábæra verki Forðist Okkur og þar sem Borgarleikhúsið hefur leigt Listaháskólanum Litla sviðið fram að áramótum næsta vetur er næsta víst að þessar aukasýningar í maí verða þær síðustu.Sýningarnar verða fim 4. maí, sun 7. maí og sun 14....

Sjá meira

Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Anímanína

Miðvikudaginn 5. apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Anímanína. Verkið er samið af meðlimum Stúdentaleikhússins og Víkingi Kristjánsssyni, sem jafnframt leikstýrir. Verkið er allt það sem leikhús hefur upp á að bjóða. Söngur og dans, dramatík og furðulegheit. Sýnt er í Loftkastalanum og hefjast sýningar kl 20:00 Stúdentaleikhúsið hefur jafnframt opnað nýja heimasíðu á www.studentaleikhusid.is, og er þar hægt að nálgast allar upplýsingar um sýningartíma á Animanina, auk þess sem hægt er að sjá meðlimi og myndir frá sýningum og fleiru. Einnig er verið er að setja upp safn með upplýsingum um eldri leikrit Stúdentaleikhússins, auk þess sem fleira mun bætast á síðuna eftir því sem lengra líður. Einnig hefur verið hannað nýtt merki Stúdentaleikhússins, og er það bæði klassískt og nýstárlegt, eins og leikhúsið...

Sjá meira

Hvað kemur þetta okkur við?

– Um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál – Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir umræðufundi í Leikhúskjallaranum laugardaginn 1. apríl kl. 15:00.   Leiklistarsamband Íslands hefur undanfarin ár efnt til umræðufunda um leiklist og leikhússtarfsemi. Í þetta sinn eru umræðufundirnir haldnir í samstarfi við fræðsludeild Þjóðleikhússins. Yfirskrift fundanna er ,,Hvað kemur þetta okkur við?” og efni þeirra er tekið úr fréttum samfélagsins en ekki beint úr leikhúsinu eins og áður hefur verið gert. Á laugardaginn munu Andri Snær Magnason, rithöfundur, Árni Bergmann, rithöfundur og Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikstjóri fjalla um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál.   Markmiðið með umræðufundunum er að fjalla um þær fréttir sem efst eru á baugi í samfélaginu út frá pólitískum og siðferðislegum forsendum. Hefur leikhúsið eitthvað að segja? Ber okkur skylda til að fjalla um málefni líðandi stundar? Hvernig getur leikhúsið tekið á vandamálum eða fréttum samtímans með listrænum hætti?   Nánari upplýsingar veitir Erling Jóhannesson frá Leiklistarsambandi Íslands (erlingj@vortex.is) í síma 891 6330 eða Ingibjörg Þórisdóttir, verkefnisstjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins (ith@leikhusid.is) í síma 585...

Sjá meira

Tveir tvöfaldir frumsýnt hjá Leikfélagi Húsavíkur

Laugardaginn 1. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur farsann Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney. Þýðingu verksins gerði Árni Ibsen en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Sýnt er í Samkomuhúsinu á Húsavík og hefst frumsýning kl. 15:00. Tveir tvöfaldir var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1998 og naut talsverðra vinsælda en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt áhugaleikfélag setur leikritið upp. Langt er um liðið síðan Leikfélag Húsavíkur setti síðast upp farsa og þótt mörgum kominn tími til. Tveir tvöfaldir segir frá stjórnmálamanni nokkrum og aðstoðarmanni hans. Þeir skrá sig inn á hótel þar sem stjórnmálamaðurinn hyggst eiga huggulega nótt með viðhaldi sínu en þegar eiginkona hans mætir á svæðið lendir það á aðstoðarmanninum að bjarga málunum. Ray Cooney er einn þekktasti farsahöfundur samtímans, skrifaði m.a. hið geysivinæla verk Með vífið í lúkunum og nú standa yfir í Borgarleikhúsinu æfingar á farsa eftir hann sem hlotið hefur nafnið Viltu finna milljón? Þetta er í fimmta skipti sem María Sigurðardóttir leikstýrir hjá leikfélaginu, áður hefur hún leikstýrt Ofurefli (86-87), Gaukshreiðrinu (91-92), Tobacco Road (94-95) og Þjóni í súpunni (03-04). Með helstu hlutverk í Tveimur tvöföldum fara Hjálmar Bogi Hafliðason, Guðný Þorgeirsdóttir og Þorkell Björnsson. Leikmynd hönnuðu Sveinbjörn Magnússon og Sigurður Sigurðsson í samvinnu við leikstjóra og um lýsingu sáu Jón Arnkelsson og Ingvar Erlingsson. Þar sem ekki reynist unnt að sýna nema í apríl verður verkið sýnt óvenju þétt og ekki eftir neinu að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur