Author: lensherra

Frá Leikfélaginu Sýnum

Leikfélagið Sýnir auglýsir fund um sumarstarfið. Fundur verður haldinn á morgun, laugardaginn 3. júní, kl. 17:30 í Leikfélaginu Sýnum (eða Sýni) Umræðuefni fundarins er sumarstarfið. Allir sem hafa áhuga á að starfa með í sumar eru hvattir til þess að mæta en einnig þeir sem luma á hugmyndum þó að þeir geti ekki starfað með á fullu.  Fundurinn verður haldinn í húsnæði Leikfélags Hafnfirðinga í gamla Lækjarskólanum. Nánari upplýsingar í síma...

Sjá meira

RSAMD með inntökupróf í Tjarnarbíói

Leiklistarskólinn, RSAMD (Royal Scottish Academy of Music and Drama), sem staðsettur er í Glasgow, verður með inntökupróf í Tjarnarbíói, sunnudaginn 4.júní, kl.10:00.  Prófin standa til klukkan 17:00. Bæði verður prófað fyrir 3ja ára leikaranám (Acting) og Contemporary Theatre Practice kúrsinn (CTP), sem er fjögurra ára leiklistarnám, ekki ósvipað Fræði og framkvæmd í LHÍ.   RSAMD, er afar virtur leiklistarskóli, með nokkrum deildum. Þar eru toppkennarar og frábær aðstaða og láta þeir nemendur sem sótt hafa skólann, sérstaklega vel af honum.  Verðið fyrir árið er það sama og gengur og gerist í Bretlandi, en mun ódýrara er að búa og lifa í Glasgow, en t.d. í London.   Þeir sem hafa áhuga á að mæta, skulu hafa samband við Öddu Rut á addarut@gmail.com eða í síma 661-8678. ATH. það er nauðsynlegt að hafa samband við hana, sérstaklega ef ætlunin er að sækja um CTP og fá nánari upplýsingar um undirbúning fyrir verkefnin.   Þeir sem sækja um, skulu prenta út umsókn af netinu (http://www.rsamd.ac.uk) og koma með hana í prófið. Prófið samanstendur af workshop sem hefst kl. 10:00 (allir), viðtölum (allir), einræðum (eina Shakespeare og eina Modern) og söngleikjalagi (þeir sem sækja um Acting) og einstaklingsverkefni (performance) og skriflegu verkefni (fyrir þá sem sækja um CTP). Munið að mikilvægt er að fá allar upplýsingar sem þarf fyrir CTP umsóknina (hjá Öddu Rut s....

Sjá meira

Frumsýning hjá Leikfélagi Kópavogs

Fimmtudagskvöldið 1. júní frumsýnir unglingadeild Leikfélags Kópavogs leikritið Dans eftir Hrund Ólafsdóttur en hún leikstýrir einnig verkinu. Aðstoðarleikstjóri er Arnar Ingvarsson. Verkið var samið á æfingatímanum sem hófst með námskeiði fyrir unglinga á aldrinum 13 – 16 ára. Helmingur hópsins var á grunnnámskeiði hjá Hrund fyrir ári en hinn helmingurinn er ýmist að leika í fyrsta sinn eða hefur sótt námskeið annars staðar. Leikritið Dans fjallar um þrjú ár í lífi Hildigunnar og vina hennar en þau eru að byrja í áttunda bekk þegar verkið hefst. Félagarnir skipta mestu máli en fjölskyldur þeirra líka og spurt er í verkinu hvort krakkarnir séu studdir af sínum nánustu þegar lífið hefur upp á svo margt að bjóða. Dans, ást, feimni, sjálfstæði, fullorðinsleikir eins og áfengisdrykkja og kynlíf ber á góma. Snúa björtu hliðar unglingsáranna að þessum krökkum eða eru hinar dökku hliðar ágengari? Leikararnir eru tíu talsins, öll á grunnskólaaldri en auk þeirra koma að sýningunni búninga- og leikmyndahönnuðir og fleiri skapandi krakkar á framhaldsskólaaldri auk tæknifólks úr Leikfélagi Kópavogs. Sýningar verða sem hér segir: Frumsýning fimmtudaginn 1. júní kl. 20:00 Önnur sýning mánudaginn 5. júní kl. 20:00 Þriðja sýning þriðjudaginn 6. júní kl. 20:00 Miðapantanir á dans@kopleik.is og í síma 5541985 Nánari upplýsingar á...

Sjá meira

VÍS og VISA í samstarf við Borgarleikhúsið

VÍS og Vísa Ísland hafa gengið til samstarfs við Borgarleikhúsið um uppsetningu á farsanum Viltu finna milljón og var samstarfssamningur undirritaður á Nýja sviði Borgarleikhússins að viðstöddum listamönnum sýningarinnar, þann 11.maí síðastliðinn. Guðjón Pedersen leikhússtjóri sagði við þetta tilefni að ánægjulegt væri að fá þessi tvö stöndugu fyrirtæki sem samstarfsaðila að þessari sýningu. “ Hláturinn lengir lífið og má því segja að fyrirtækin standi saman að heilsuátaki” sagði Guðjón jafnframt. Verkið fjallar um Harald sem hefur unnið hjá skattinum á lúsarlaunum svo lengi sem elstu menn muna, einn daginn finnur hann fulla tösku af peningum, þetta er vanur maður sem sér að að féð er illa fengið en hann ákveður að þetta sé hans tækifæri til betra lífs og fer beint í að panta flug aðra leiðina út í heim. En málið er vitaskuld ekki svo einfalt og heilmiklar flækjur, lygar og taugaveiklun fylgja í kjölfarið.   Leikarar eru: Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Marta Nordal, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Bergur Þór Ingólfsson, Gunnar Hansson, Guðmundur Ólafsson og Theodór Júlíusson. Þýðing og staðfærsla: Gísli Rúnar Jónasson. Leikstóri er Þór Tulinius.   Verkið hefur fengið frábær móttökur og heyra má hlátrasköllin á sýningum langt fram í forsal. Einn gagnrýnandinn orðaði það svo að þakið hafi næstum rifnað af húsinu vegna fagnaðarláta á...

Sjá meira

Áhorfendaverðlaun Grímunnar 2006

Uppskeruhátíð sviðslista á Íslandi fyrir leikárið 2005-6, Gríman, verður haldin í fjórða sinn í Borgarleikhúsinu föstudaginn 16. júní 2006. Áhorfendaverðlaun Grímunnar gefa leikhússgestum kost á að velja bestu sýningu ársins að þeirra mati. Í fyrra var söngleikurinn Óliver valinn besta sýning ársins af áhorfendum. Valnefnd Grímunnar hefur verið að störfum allt þetta leikár og skoðað um 60 sviðsverk, allt frá hefðbundnum leiksýningum til stórbrotinna ópera og glæsilegra söngleikja. Alls koma um 1000 listamenn sem hafa tekið þátt í þessum sviðsverkum til álita til Grímunnar í ár og eiga möguleika á verðlaununum eftirsóttu þann 16. júní. Frá og með 29. maí verður hægt að greiða atkvæði til Áhorfendaverðlauna Grímunnar. Kosningunni lýkur þann 11. júní . Athugið að aðeins verður hægt að kjósa einu sinni úr hverri tölvu. Kosningin fer fram á vefnum...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert