Author: lensherra

Systur sýna dramatísk tilþrif – Systur

Hugleikur frumsýndi nýskeð í Möguleikhúsinu leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar. Lárus Vilhjálmsson brá sér á sýningu og greinir frá upplifun sinni. Það er alltaf eitthvað dramatískt við samband systkina. Þessi ósýnilegu bönd sem tengja okkur við bræður okkar og systur eru bæði óþolandi og æðisleg, dularfull og þreytandi en aldrei leiðinleg. Og höfundar hafa náttúrulega gert sér mat úr þvílíkum efnivið bæði í bókmenntum og ekki síður á leiksviðinu. Þórunn Guðmundsdóttir sem hefur til nokkurra ára skrifað fyrir Hugleik með góðum árangri skilar nú enn einu sinni góðu verki á fjalirnar. Systur fjallar um þrjár...

Sjá meira

Leikskáldið Edward Bond kemur til Íslands

Breska leikskáldið Edward Bond er gestur Félags leikskálda og handritshöfunda, Hafnarfjarðarleikhússins og Breska sendiráðsins á fyrirlestri og sýnikennslu (Masterclass) í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 29. apríl kl. 10-16. Allir áhugamenn um leikhús og leikritun eru velkomnir á þennan einstaka viðburð. Þar mun Edward Bond fjalla um leikritun sína og vinna með leikurum í atriðum úr tveimur leikrita sinna til að skýra hugmyndirnar sem að baki liggja. Fyrirlesturinn og sýnikennslan fer fram á ensku. Edward Bond telst hiklaust í hópi merkustu leikskálda síðari hluta 20. aldarinnar, hann á að baki glæsilegan feril sem hófst með frumsýningu á einu umdeildasta leikriti síðari tíma í bresku leikhúsi, þegar Royal Court leikhúsið frumsýndi Saved (Hjálp) árið 1965. Verkið var bannað en sýningum var engu að síður haldið áfram og í kjölfarið var hin konunglega breska ritskoðun lögð niður. Af verkum hans síðar má nefna The Sea, Bingo, The Fool, The Woman, The Human Cannon, Derek, Restoration, The War Plays, Jackets, Crime of The 21st Century, Ollie´s Prison, Coffee o. fl. Öll helstu leikhús beggja vegna Atlantshafsins hafa sviðsett leikrit hans, þ.á m. The National Theatre London, The Royal Shakespeare Company, The Royal Court Theatre, Off Broadway leikhús í New York, Berliner Ensamble, Theatre National Paris o.fl. o. fl. Hann hefur sjálfur verið mikilvirkur leikstjóri eigin verka og ferðast víða um heim með fyrirlestra og sýnikennslu. Eftir Bond liggja nær 30 leikrit, auk kvikmyndahandrita og sjónvarpsleikrita,...

Sjá meira

Síðasta sýning á Rítu í Iðnó

Laugardaginn 29. apríl  verður síðasta sýning leikhópsins Kláusar á Rítu eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó sem sýnt hefur verið undanfarin rúman mánuð við ágætar undirtektir áhorfenda. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson. Um hönnun og leikmynd verksins sér Jóhannes Dagsson. Laugardaginn 29. apríl  verður síðasta sýning leikhópsins Kláusar á Rítu eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó sem sýnt hefur verið undanfarin rúman mánuð við ágætar undirtektir áhorfenda. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð....

Sjá meira

Leikfélag Kópavogs frumsýnir ALF

Fimmtudaginn 27. apríl frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikverkið ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi. Fimmtudaginn 27. apríl frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikverkið ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi. ALF er blóðugt háð og óhugguleg ádeila á taumlausa útlitsdýrkun. Þegar þessi misfríði en jafnskemmtilegi hópur fólks hóf samstarf sitt kom í ljós að ýmsum fannst pottur brotinn í samfélagi okkar. Allir höfðu...

Sjá meira

Leikfélag Mosfellssveitar á Hvammstanga

Laugardaginn 29. apríl klukkan 17:00 mun Leikfélag Mosfellssveitar sýna á Hvammstanga leikritið Í beinni eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson í leikstjórn Guðnýjar Maríu Jónsdóttur.  Samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni.  Leikritið gerist í lokaþætti spjallþáttarins Í beinni sem stjórnað er af hinum stórskemmtilega Benna Gumm. Útsendingin gengur þó ekki átakalaust fyrir sig og hinar óvæntustu uppákomur setja svip sinn á atburðarásina. Þetta er bráðfyndið leikrit sem óhætt er að mæla með fyrir alla...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur