Author: lensherra

Handritasafn Bandalagsins stækkar

Handritasafn Bandalagsins hefur að undanförnu tekið hressilegan vaxtarkipp. Því hefur borist mikið af handritum að loknu leikári hjá aðildarfélögum Bandalagsins og stóru leikhúsunum en einnig hefur það fengið tvær handritagjafir þar sem talsvert hefur verið af leikritum sem af einhverjum ástæðum hafa ekki ratað hingað fyrr. Handritasafn Bandalagsins hefur að undanförnu tekið hressilegan vaxtarkipp. Því hefur borist mikið af handritum að loknu leikári hjá aðildarfélögum Bandalagsins og stóru leikhúsunum en einnig hefur það fengið tvær handritagjafir þar sem talsvert hefur verið af leikritum sem af einhverjum ástæðum hafa ekki ratað hingað fyrr. Leikfélag Kópavogs afhenti Bandalaginu nú á dögunum...

Sjá meira

Leikfélagið Sýnir æfir Mávinn

Leikfélagið Sýnir æfir nú stíft fyrir frumsýningu á Mávinum eftir Rússann Anton Tjekhov. Frumsýnt verður þann 29. júlí næstkomandi við Elliðaár, en margir muna eftir uppsetningu leikfélagsins þar á Draumi á Jónsmessunótt fyrir þremur árum. Leikstjóri Mávsins er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Denni, sem leikstýrði Stútungasögu í Heiðmörk hjá félaginu fyrir tveimur árum. Leikfélagið Sýnir æfir nú stíft fyrir frumsýningu á Mávinum eftir Rússann Anton Tjekhov. Frumsýnt verður þann 29. júlí næstkomandi við Elliðaár, en margir muna eftir uppsetningu leikfélagsins þar á Draumi á Jónsmessunótt fyrir þremur árum. Leikstjóri Mávsins er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Denni, sem leikstýrði Stútungasögu í Heiðmörk...

Sjá meira

Sakamál á svið!

31 hugmynd að sakamálum fyrir svið bárust Leikfélagi Reykjavíkur á vordögum en leikfélagið stendur fyrir samkeppni um sakamálaleikrit í samstarfi við SPRON.    Sex verk hafa verið valin til frekari þróunar en þrjú þeirra vinna til peningaverðlauna og eitt þeirra verður valið til vinnslu með leikhópi Leikfélagsins. Leynd hvíldi yfir höfundum keppninar meðan valið var en nú hefur hulunni verið svipt af höfundunum og í ljós hefur komið hverjir það eru sem munu halda skrifum áfram.   Höfundarnir eru Guðmundur Brynjólfsson leikhúsfræðingur, Guðmundur Kr. Oddsson blaðamaður, mæðginin Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður og Jónína Leósdóttir leikskáld, Jón Hallur Stefánsson rithöfundur og útvarpsmaður, Snæbjörn Brynjarsson leiklistarnemi og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman leikskáld.   Fullunnin handrit munu liggja fyrir 1.október og í framhaldinu verða haldnir leiklestrar á völdum...

Sjá meira

Himnaríki á Suðureyri

Fimmtudaginn 6. júlí næstkomandi frumsýnir Leikfélagið Hallvarður Súgandi leikritið Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Frumsýningin verður klukkan 20:00 í íþróttahúsi Súgfirðinga. Fimmtudaginn 6. júlí næstkomandi frumsýnir Leikfélagið Hallvarður Súgandi leikritið Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Verkið segir frá þrem ungum pörum sem fara í sumarbústað yfir eina helgi og eins og oft vill verða í slíkum ferðum endar það allt í fylleríi og vitleysu og áður en langt er um liðið eru hlutirnir algjörlega farnir úr böndunum. Verkið hefur þá sérstöðu að sviðið er í miðjum sýningarsalnum og áhorfendur sitja beggja vegna, annarsvegar...

Sjá meira

Leiklistarskólinn okkar viðfangsefni Út og suður

Gísli Einarsson og Freyr Arnarsson heimsóttu Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga að Húsabakka í Svarfaðardal þann 15. júní sl. og festu á filmu það sem fyrir bar ásamt því að taka viðtöl við skólastýrur, kennara og nemendur. Þátturinn verður á dagskrá Sjónvarpsins sunudaginn 2. júlí kl....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert