Author: lensherra

Varaðu þig á vatninu – Jólasýning

Laugardaginn 9. desember sýnir Leikfélag Mosfellssveitar jólasýningu á verkinu Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen í leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarssonar. Miðaverð verður aðeins kr. 1.200 á þessa sýningu og boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Einnig munu þrír heppnir leikhúsgestir hafa með sér jólatré heim. Leikritið gerist á tímum kalda stríðsins og fjallar um bandaríska fjölskyldu sem leitar skjóls í bandaríska sendiráðinu í Vúlgaríu eftir að hafa tekið þar ljósmyndir á bannsvæði. Óvæntir atburðir setja svip sinn á leikritið og útlit er fyrir að það eigi eftir að reynast fjölskyldunni erfitt að komast aftur til...

Sjá meira

Barnaleikhúshátíð í anda Astrid Lindgren

Nordisk amatörteaterraad (NAR) Sveriges Amatörteaterraad og Vimmerby-bær bjóða barnaleikhúshópum (leikendum á aldrinum 9 til 14 ára) frá Norðurlöndunum og baltnesku löndunum á SPUNK-hátíðina í Vimmerby 18. – 24. júní 2007. Hátíðin er hluti af hundrað ára afmælishátíð Astrid Lindgren. Þau lönd sem boðið er að taka þáttí hátíðinni eru hópar frá aðildarlöndum NAR og baltnesku löndunum. Hópum er boðið frá Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Álandseyjum, Lettlandi, Litháen og Noregi, einum fré hverju landi, einum finnskumælandi og einum sænskumælandi frá Finnlandi og tveimur hópum frá Svíðþjóð. Hér með er auglýst eftir íslenskum hópi á hátíðina! Hátíðin hefst um kvöldið...

Sjá meira

Endurtekur sagan sig?

Útsendari okkar fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar um helgina og ritar sitt álit: "Leikfélag Hafnarfjarðar á 70 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni afmælisins ákvað stjórn þess að setja upp að nýju Ráðskonu Bakkabræðra, vinsælasta leikrit sem þar hefur á fjalir komið. Sú sýning var sett upp í lok seinni heimsstyrjaldar og að sögn voru vinsældir þess svo miklar að "… fólk gerði sér far úr Reykjavík til að standa í biðröð í tvo, þrjá tíma" eftir miðum. Ráðskona Bakkabræðra er dæmigert barn síns tíma og spyrja má hvaða erindi þetta leikverk á við okkur í dag."...

Sjá meira

Jólabónus Hugleiks

Nú fer aðventan í hönd og þá er hefð fyrir því að leikfélagið Hugleikur bregði sér í jólafötin og skemmti sér og öðrum sem aldrei fyrr. Jóladagskrá Hugleiks heitir að þessu sinni Jólabónus og verður framin í Þjóðleikhúskjallaranum þriðjudaginn 5. og fimmtudaginn 7. desember klukkan 21.00. Leikfélagið Hugleikur fékk á dögunum viðurkenningu á degi íslenskrar tungu fyrir nýsköpun í leikritun, útúrsnúning ýmiskonar á tungumálinu og allskyns meðferð á menningararfinum. Félagið sér því sóma sinn, sem aldrei fyrr, í að vinna af atorku að þessu öllu saman, nú á viðurkenndan hátt. Og sjaldan úr jafnmiklu að moða og einmitt þegar...

Sjá meira

Lokasýning á Umbreytingu í Þjóðleikhúsinu

Á síðasta leikári leysti Kassinn, hið nýja svið Þjóðleikhússins við Lindargötu, Litla sviðið af hólmi sem leiksvið, og nú hefur Litla sviðið hlotið nýtt nafn, Kúlan, og öðlast nýtt hlutverk fyrir leikhúsgaldur og leiklistaruppeldi. Vígslusýning Kúlunnar var sýning brúðusnillingsins Bernds Ogrodniks, Umbreyting – Ljóð á hreyfingu, sem var frumsýnd á Listahátíð í Reykjavík á liðnu vori. Umbreyting hlaut einróma lof gagnrýnenda. Síðasta sýning á Umbreytingu verður föstudaginn 1. desember kl....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert