Author: lensherra

Prímadonnurnar í Freyvangsleikhúsinu

Föstudaginn 23. febrúar næstkomandi verður gamanleikurinn Prímadonnurnar Íslandsfrumsýndur í Freyvangi, Eyjafjarðarsveit. Verkið er eftir Ken Ludwig, en hann hefur getið sér gott orð sem gamanleikskáld í Bandaríkjunum og hafa verk hans einnig verið sýnd víða um heim. Leikstjóri er hin góðkunna Saga Jónsdóttir, en hún þýðir einnig verkið. Þá er Þórarinn Blöndal hönnuður leikmyndar og um lýsingu sér Þorsteinn Sigurbergsson. Prímadonnurnar gerist á 6. áratug síðustu aldar. Leikararnir Leo Clark og Jack Gable ferðast um Bandaríkin með farandsýningu sína, Senur úr Shakespeare. Eftir sérstaklega misheppnað kvöld er útlitið dökkt hjá þeim félögum en blaðagrein kemur þeim á spor deyjandi...

Sjá meira

Bar par á Nasa

Frumsýning á hinum frábæra gamanleik Bar par eftir Jim Cartwright verður föstudaginn 23. febrúar kl. 20 á Nasa við Austurvöll. Sögusvið verksins er ónefndur bar sem er frægur fyrir ,,að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum". Áhorfendur fá tækifæri til að sjá og upplifa eina kvöldstund í lífi hjónanna sem eiga og reka staðinn en einnig koma við sögu fjöldi gesta á öllum aldri. Hjóninn virðast við fyrstu sín hata hvort annað – hún daðrar skammlaust við alla gestina og drekkur út gróðann á meðan hann reynir að hafa stjórn á hlutunum. Skrautlegir og...

Sjá meira

Batnandi maður frumsýndur hjá Halaleikhópnum

Í ár heldur Halaleikhópurinn upp á 15 ára afmæli sitt. Í tilefni af því frumsýnir hópurinn nú nýtt íslenskt verk. Leikritið heitir Batnandi maður og er eftir Ármann Guðmundsson sem jafnframt er leikstjóri. Frumsýnt verður laugardaginn 24. febrúar í Halanum, Hátúni 12. Verkið fjallar á gráglettinn hátt um sjómanninn Sigmar sem fengið hefur nóg af sjómennsku og sér tækifæri þegar hann lendir í vinnuslysi til þess að láta úrskurða sig öryrkja og njóta þannig lífsins á kostnað skattborgaranna. Sýningar verða Frumsýning    laugardaginn 24. febrúar 2. sýning        laugardaginn 3. mars         3. sýning        laugardaginn 10. mars 4. sýning   ...

Sjá meira

Pétur og úlfurinn í Þjóðleikhúsinu

Laugardaginn 17. febrúar hefjast sýningar á Pétri og úlfinum eftir Sergei Prokofief í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu. Hér er um að ræða brúðusýningu snillingsins Bernds Ogrodniks sem er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur eftir áralangt starf. Bernd smíðar allar brúðurnar og leikmyndina úr linditré og íslensku birki og stjórnar þeim í litríkri og spennandi sýningu. Helga Björt Möller gerði búninga og Ari Baldursson vann hljóðmynd. Rússneska tónskáldið Sergei Prokofief samdi bæði texta og tónlist í Pétri og úlfinum á einni viku árið 1936 með það fyrir augum að leiða unga hlustendur inn í heim sígildrar tónlistar. Verkið hefur notið gífurlegra...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Hnerranum á Selfossi

Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir gamanverkið Hnerrann eftir Anton Chekov, sjö þætti og smásögur í leikgerð Michael Frayn. Leikstjóri og þýðandi er Hörður Sigurðarson. Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta stórskemmtilega verk ættu að drífa sig í Litla leikhúsið við Sigtún á Selfossi, því sýningum fer fækkandi. Síðustu sýningar verða sem hér segir: 10. sýning     föstudaginn 16 febrúar – uppselt 11. sýning     sunnudaginn 18 febrúar 12. sýning     föstudaginn 23 febrúar Lokasýning   sunnudaginn 25 febrúar   Allar sýningar hefjast kl. 20.30 Miðasala í síma 482-2787 eftir kl.16...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert